Ragnheiður Jónsdóttir | október. 6. 2015 | 14:45

44 fyndnustu augnablik í golfinu (14/44)

E.B. White skrifaði eitt sinn: „Að skilgreina húmor er eins og að kryfja frosk. Fáir hafa áhuga á því og froskurinn deyr.”

Þannig að finna 44 fyndnustu golfmómentin getur auðvitað ekki verið annað en nálgun byggð á húmor einhvers, sem öðrum finnst e.t.v. lélegur – málið er bara að ef nógu mörg atriði eru týnd til þá hlýtur að mega finna 1 eða 2 atriði sem e.t.v. má brosa að …. og þá er tilganginum náð.

Hér hafa fréttamenn Golf Digest varið miklum tíma og hláturköstum í að rifja upp fyndin móment í golfinu. Verði ykkur að góðu og vonandi finnið þið eitthvað sem ykkur þykir fyndið næsta 1 1/2 mánuðinn, sem Golf 1 birtir þessi fyndnu augnablik golfsögunnar:

Nr. 31

Fyrrum framkvæmdastjóri Augusta National Clifford Roberts, sem var þekktur fyrir að vera fremur fýldur persónuleiki var eitt sinn plataður til að vera „punch-línan“ á herrakvöldi í klúbbnum (ekki erfitt því það eru jú bara 2 kvenfélagar í klúbbnum!!!)

Einn félagsmanna klúbbsins, Frank Christian Jr., hafði tekið upp myndskeið af því þar sem Roberts var að útskýra af hverju það væru engar endur í tjörnum Augusta. En Christan hraðaði kvikmyndinni og bætti inn krakkaröddu sem söng baðtímasönginn „Rubber Ducky“.  Þegar litið var yfir þá sem komu á herrakvöldið sáust tár renna niður vanga félaganna, sem reyndu sitt ýtrasta til þess að fara ekki að hlægja,“ sagði Christian.  „Hr. Roberts á hinn bóginn tók þessu alls ekki vel.

Hér má heyra Ernie úr Sesame Street syngja Rubber Ducky SMELLIÐ HÉR: