Lydia Ko
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 21. 2013 | 20:30

Fitzpatrick og Ko hlutu Mark H. McCormack viðurkenninguna

Matthew Fitzpatrick frá Englandi og golfstjarnan unga Lydia Ko fengu Mark H. McCormack medalíurnar fyrir að vera fremstu áhugamenn í heimi skv. World Amateur Golf Ranking árið 2013.

Matthew Fitzpatrick

Matthew Fitzpatrick

Fitzpatrick hlaut silfurmedalíuna á British Open og varð fyrsti Englendingurinn til að sigra á U.S. Amateur Championship í The Country Club í Brookline, Massachusetts s.l. sunnudag.

„Ég er algerlega frá mér numinn að vinna McCormack medalíuna,“ sagði hinn 18 ára Fitzpatrick í fréttatilkynningu. „Að hljóta þessa viðurkenningu á sama tíma og að sigra í U.S. Amateur Championship er virkilega sérstakt.

Ko er að vinna sér inn McCormack medalíuna 3. árið í röð vegna frábærrar frammistöðu enn eitt árið, þar sem hún tók m.a. þátt í öllum risamótum kvennagolfsins það sem af er ársins og spilaði á fjölda móta á vegum  Ladies Professional Golf Association, þ.e. á LPGA túrnum.

„Þetta skiptir miklu máli,“ segir Ko, sem er yngst til að sigra á móti á LPGA mótaröðinni.

„Ég vann US Amateur á síðasta ári. Ég vildi vinna þetta mót svo mikið og að hafa unnið það er frábært. Án þess að hafa unnið það hefði ég e.t.v. ekki haldið stöðu minni.

Medalían er nefnd í höfuðið á Mark McCormack, sem var frumkvöðull á sviði íþróttaiðnaðarins og er jafnframt stofnandi World Ranking System, þ.e. heimslistanna.  McCormack dó árið 2003.  Fyrirtæki McCormack IMG er eitt stærsta umboðsfyrirtæki fyrir íþróttamenn.