Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 26. 2016 | 11:55

Hver er kylfingurinn: Bryson DeChambeau?

Það var einn kylfingur öðrum fremur sem vakti athygli á sér á Abu Dhabi HSBC Golf Championship og það var ekki Jordan Spieth.

Nei, það var annar ungur 22 ára Bandaríkjamaður „sem stal show-inu“ þegar hann varð í efsta sæti á 8 undir pari, 64 höggum eftir 1. hring mótsins, sem hann lauk síðan T-54, en engu að síður hann er áhugamaður að taka þátt í fyrstu mótunum sínum með „stóru strákunum“, sem hann skaut öllum ref fyrir rass á 1. degi.  Á 1. degi lék hann 4 höggum betur en nr. 1 á heimslistanum Jordan Spieth og 2 höggum betur en fyrrum nr. 1 Rory McIlroy.

Fallegi, brosmildi Kaliforníustrákurinn Bryson DeChambeau, næsta stórstjarna Bandaríkjamanna í golfinu?

Fallegi, brosmildi Kaliforníustrákurinn Bryson DeChambeau, næsta stórstjarna Bandaríkjamanna í golfinu?

Hver er kylfingurinn Bryson DeChambeau?

Bryson fæddist 16. september 1993 í Modesto, Kaliforníu og er því 22 ára. Hann býr í Clovis, Kaliforníu

Meðal fyrstu stórsigra Bryson í golfinu er sigur hans fyrir 6 árum á California State Junior Championship, þegar hann var aðeins 16 ára.

Hann var á golfskólastyrk í Southern Methodist University (SMU) í Dallas, Texas, og vann NCAA titilinn í fyrra 2015. Tveimur mánuðum síðar vann hannUS Amateur og er einn í hópi 5  stórsnillinga  m.a. þeirra Phil Mickelson, Tiger Woods og Jack Nicklaus sem tekist hefir að sigra báða titla sama árið.

Það að hann vann US Amateur titilinn veldur því að hann á þátttökurétt í The Masters risamótinu og verður eflaust einn mest umtalaði leikmaðurinn þar.

Hann er líka mjög klár en hann nam eðlisfræði í SMU sem er lítill einkaháskóli og þykir mjög sætur og klæða sig smart; ekki ólíkt Payne Stewart heitnum.

DeChambeau er með höfuðfat ekki ólíkt og Payne Stewart var alltaf með

DeChambeau er með höfuðfat ekki ólíkt og Payne Stewart var alltaf með

Öll járnin í poka hans eru líka sömu lengdar, 37 tommu, sem vakti athygli m.a. Rory og Ernie Els í Abu Dhabi, sem gjarnan vildu fá ráð hjá áhugamanninum.

Afstaða Bryson Dechambeau er líka mjög skynsöm aðspurður um þennan afbrigðileika hans í kylfuvali:

„Þegar maður lítur á stefnur í mannkyninu þá fylgja flestir því sem er „venjulegt“, sagði DeChambeau blaðamönnum. „En maður er líka með menn eins og Einstein og George Washington; Þeir voru einstakir og græddu á því að vera öðruvísi og gáfu mönnum aðra sýn á heiminn.“

DeChambeau kallar sjálfan sig „golf vísindamann“.  „Þær eru allar sömu lengdar,“ sagði DeChambeau m.a. í viðtali við BBC Sport. „Sama leguhorn, sömu sköft, aðeins mismunandi loft. Sama „bounce configuration-ið“ á öllum þeirra.“

„En það er 4 gráðu munur á lofti milli þeirra og það virkar ansi vel. Það hjálpar mér við að halda sömu stöðu, sama set-upp-i og sama allt og mér gengur vel í járnahöggunum.“

Fagn hjá Bryson DeChambeau

Fagn hjá Bryson DeChambeau

Hugmyndina fékk Bryson úr bók sem nefnist „The Golfing Machine’, bók eftir Homer Kelly, sem hann gaf sjálfur út en Kelly vann m.a. sem flugvélavélvirki í Seattle árið 1969.

Kalifornski golfkennarinn Mike Schy rakst á bókina og var heillaður af kenningu Kelly um G.O.L.F þ.e. „geometric oriental linear force“ og virkni hennar á golfbolta.

Hann höfðaði líka til vísindamannsins í DeChambeau.

Í golfheiminum sem er uppfullur af einsleitni, venjulegheitum og venjum þá er DeChambeau eins og ferskur andblær. Og þessi „öðruvísileiki“ hans virkar.

Fæstir muna eftir að DeChambeau varð í 2. sæti á eftir Peter Senior á Australian Masters á síðasta ári (2015).

Bryson DeChambeau sætur!

Bryson DeChambeau sætur!

Hann er fastur fyrir (m.ö.o. þrjóskur),“ segir móðir Bryson, Jan. „Ef eitthvað hefir verið sannað fyrir honum þá beitir hann því og heldur velli.

Þessi ákveðni kemur frá föður Bryson, John, sem eitt sinn var fremsti áhugamaður Kaliforníu.

Bryson hefir hins vegar unnið með þjálfara sínum til þess að aðlaga kenningar „the Golfing Machine“ að leik sínum.

Við töldum að það yrði einfaldlega að vera til betri leið að spila golf,“ sagði DeChambeau eitt sinn í viðtali.

Þetta er löng saga en stutta útgáfan er sú að ég valdi þessa útgáfu af „The Golfing Machine“ vegna þess að hún gerir mér kleift að sveifla alltaf á sama planinu.“

Að smíða sínar eigin kylfur var nokkuð, eins og áður er komið fram, sem DeChambeau var innblásinn af eftir lestur á bókinni „The Golfing Machine.“

Og þegar ég lét af þessu verða þá sá ég að ég gat ekki notað fleygjárn og 3-járn vegna þess að þetta þýddi að ég þurfti að breyta líkamshreyfingum mínum. Það „meikar engan sense“ þannig að ég sagði við sjálfan mig af hverju geri ég þær ekki þannig að þær hafi sömu legu, horn og séu jafnlangar?

Og þjálfarinn minn sagði: „Þetta er auðveld spurning en erfitt að svara henni. Þannig að við hófum þessa vegferð og þetta hefir verið frábært ferli og frábær reynsla sem ég hef lært af.