Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 31. 2012 | 20:00

Nýju stúlkurnar á LET 2012 (6. grein af 34): Laura Cabanillas

Í kvöld verður fram haldið greinaflokki á kylfingum, sem fóru í gegnum Q-school 2012 í janúar s.l. á La Manga golfvellinum og hlutu kortin sín á Evrópumótaröð kvenna. Sex stúlkur lentu í umspili um síðustu 2 kortin af 30, sem veitt voru og í kvöld verður sú stúlka kynnt sem var svo heppin að verða í 29. sæti þ.e. varð efst af þeim 6 í umspilinu – spænska stúlkan Laura Cabanillas.

Laura Cabanillas fæddist 11. júlí 1981 í Malaga á Spáni og er því 31 árs. Laura gerðist atvinnumaður 4. október 2001. Hún var í spænska unglingalandsliðinu.  Cabanillas hefir átt fast sæti á LET frá 2002, en nú í janúar rétt slapp hún með skrekkinn og inn á mótaröðina.  Besta ár hennar á LET er 2007. Áhugamál Lauru eru stangveiðar, að lesa, synda og fara í bíó.