Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 10. 2014 | 17:30

Nýju stúlkurnar á LET 2014: Steffi Kirchmayr (29/31)

Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour).

Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó. Leiknir voru 5 hringir og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014.

Nú er aðeins eftir að kynna þær stúlkur sem urðu í 3 efstu sætunum. Byrjað verður á að kynna þær 2, sem deildu 2.3.. sætinu þ.e. þær Steffi Kirchmayr og Sally Watson en þær léku báðar á samtals á 5 undir pari, 355 höggum, hv0r.

Sú sem verður kynnt í kvöld er hin þýska  Steffi Kirchmayr. Kirchmayr varð í 3. sæti  eins og segir á  355 höggum (72 73 69 68 73).

Steffi Kirchmayr fæddist 24. janúar 1985 og er því 29 ára. Steffi byrjaði að spila golf 8 ára og segir pabba sinn hafa haft mestu áhrif á golfferil sinn.

Meðal hápunkta á áhugamannsferli Steffi er að hún varð í 3. sæti á  European Ladies Individual Championship árið 2006.  Hún er í golflandsliði Þýskalands og varð European Team Champion árið 2009. Hún hefir tvisvar orðið Southern Conference leikmaður. Hún hlaut NCAA All- American Honorable Mention 2007-08. Besti hringur Steffi er 9 undir pari.

Steffi er með gráðu í viðskiptafræði og hótelstjórnun frá College of Charleston í Suður-Karólínu, þar sem hún spilaði með golfliði skólans í 3 og 1/2 ár. Hún vann við hótelstjórn í 1 ár áður en hún ákvað að gerast atvinnumaður í golfi.  Steffi gerðist atvinnumaður í golfi í janúar 2012.

Steffi komst strax á LET 2012 og á nýliðaári sínu spilaði hún í 16 mótum en komst aðeins 6 sinnum í gegnum niðurskurð.  Besti árangur hennar varð T-30 árangur á Raiffeisenbank Prague Masters.  Steffi varð aðeins í 143. sæti á peningalistanum 2012 og varð því að fara aftur í Q-school í Marokko þar sem hún varð í 43. sæti.

Árið 2013 lék Steffi aðeins í 9 LET mótum og einbeitti sér aðallega að því að spila á LET Access mótaröðinni, þar sem hún tók þátt í 14 mótum.  Hún varð í 7. sæti á stigalista LET Access og fékk því að spila beint á lokaúrtökumóti Lalla Aicha Tour School, þar sem hún varð glæsilega í 3. sæti.

Loks mætti geta að meðal áhugamála Steffi eru fótbolti (en Steffi er mikil stuðningskona Bayern München), sund að horfa á kvikmyndir og hlusta á tónlist.