Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 18. 2018 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2018: Elina Nummenpää (15/25)

Golf 1 mun nú kynna þær stúlkur sem hlutu fullan keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna, en lokaúrtökumótið fór fram í Marokkó í 16.-20. desember 2017.

Leiknir voru 5 hringir og voru stúlkurnar 60 að þessu sinni sem kepptu um kortið sitt, þ.á.m. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK.

Það voru 25 efstu stúlkurnar sem komust á LET og baráttan í ár var hörð.

T.a.m. voru 6 stúlkur jafnar í 24. sætinu á samtals 4 undir pari, 356 höggum og varð að koma til bráðabana milli þeirra því aðeins tvö sæti voru í boði þ.e. það 24. og 25.

Það voru tvær norskar stúlkur sem sigruðu í bráðabananum þ.e. þær Celine Borge og Madeleine Stavnar (báðar með örn á par-5 18. holuna þar sem úrslitin réðust).

Þær 4, sem sátu eftir með sárt ennið voru hin spænska Maria Palacios Siegenthaler; Julie Aime frá Frakklandi; Kiran Matharu frá Englandi og Tiia Koivisto frá Finnlandi.

Þessar tvær heppnu stúlkur, sem unnu í bráðabanaum um 24. og 25. sætin hafa nú verið kynntar og eins stúlkurnar 5 sem urðu í 19.sæti en það eru Ariane Provot frá Frakklandi; Katja Pogacar frá Slóveníu; Ainil Bakar frá Bandaríkjunum; Sideri Vanova frá Tékklandi og Lucrezia Colombotto Rosso frá Ítalíu. Eins hafa þrjár stúlkur sem urðu í 16. sæti á samtals 6 undir pari, 354 höggum verið kynntar: Elia Folch frá Spáni; Cloe Frankish frá Englandi og Sanna Nuutinen frá Finnandi. Næst voru þær sem deildu 14. sætinu kynntar: Mireia Prat og Piti Martinez Bernal, en báðar léku þær á samtals 7 undir pari, 353 höggum.

Fimm stúlkur deildu 9. sætinu, en það eru: Julía Engström og Cajsa Persson frá Svíþjóð; Vikki Laing frá Skotlandi; Laura Sedda frá Ítalíu og Elína Nummenpaa frá Finnlandi. Þær léku allar á samtals 8 undir pari, 352 höggum. Vikki Laing og Laura Sedda hafa þegar verið kynntar og í dag er það Elína Nummenpaa frá Finnlandi.

Elína Nummenpää fæddist 7. september 1983 í Turku, Finnlandi og er því 34 ára.

Elina komst fyrst í gegnum Q-school Evrópumótaraðar kvenna, einmitt á Lalla Aicha móti í Marokkó árið 2013 og síðan aftur 2014 og þá var eftirfarandi kynningargrein skrifuð hér á Golf 1 um Elinu, sem enn á við í dag SMELLIÐ HÉR:

Fræðast má nánar um Elinu á flottri Twitter síðu hennar – Sjá með því að SMELLA HÉR:

Komast má á facebook síðu Elinu með því að SMELLA HÉR: