Viðtalið: Guðmundur Einarsson, GSG.
Það kannast allir kylfingar, sem á annað borð spila á Kirkjubólsvelli í Sandgerði við Guðmund Einarsson, framkvæmdastjóra klúbbsins. GSG fagnaði einmitt 25 ára afmæli sínu í ár, en klúbburinn var stofnaður 1986. Það er alltaf jafnhuggulegt að koma á Kirkjubólsvöll, sérstaklega á haust- og vetrarmótunum þegar heitar vöfflur og sælkersúpur bíða að leik loknum hjá þeim Guðmundi og Öldu. Nú á laugardaginn, 10. desember 2011, fer fram „Skötumótið“ sem er orðinn árviss viðburður hjá klúbbnum, en þar er göldruð fram einhver sú kæstasta skata sunnan Vestfjarða. Hér fer viðtalið við Guðmund:
Fullt nafn: Guðmundur Einarsson.
Klúbbur: GSG.
Hvar og hvernær fæddistu? Í Reykjavík, 16. júlí 1951.
Hvar ertu alinn upp? Fyrstu árunum eyddi ég í sænsk-íslenska frystihúsinu. Þar bjuggu foreldrar mínar í 2 herbergjum, sem sneru út að sjónum – Dægradvölin mín að telja skip og bíla, þar sem Seðlabankinn er nún. Þegar ég var 6 ára fluttumst við að Grundargerði 18, sem er gata sem liggur eins og Grensásvegur beint fyrir ofan Hagkaup í Skeifunni. Þar átti ég heima til ársins 1975 en þá byrjaði ég að vinna í Sandgerði og kynntist konunni minni 1979-1980. Við settumst að í Sandgerði.
Hverjar eru fjölskylduaðstæður – Er einhver í fjölskyldunni, sem spilar golf? Ég er kvæntur Öldu Elíasdóttur og á 2 börn, Elías og Ása. Konan mín var í golfi en er eiginlega hætt. Ása hótar syninum því að um leið og hann nái tökum á skapinu þá byrji hún í golfinu. Ég á 5 barnabörn (Óskar Marinó er í golfi og sá yngsti Theódór, 4 ára, yngsti klúbbmeðlimur í Sandgerði var skírður í klúbbhúsinu.)
Hvenær byrjaðir þú í golfi? Árið 1985 í Sandgerði.
Hvað varð til þess að þú byrjaðir í golfi? Það er nú það, Menn fengu hérna bakteríuna og fóru að stelast í matartímanum – fannst þetta ekkert sérstakt en bakterían ágerðist smávegis og hefur verið stanslaus síðan. Á tímabili var ég í báðum klúbbunum þ.e. ég var í Leirunni í 1-2 ár.
Hvað starfar þú? Ég er framkvæmdastjóri GSG.
Hvort líkar þér betur við skógar- eða strandvöll? Ég geri ekki upp á milli þeirra – báðir hafa sinn sjarma.
Hvort líkar þér betur holukeppni eða höggleik? Holukeppni er óskaplega skemmtileg en aftur á móti finnst mér punktakeppni skemmtilegri en höggleikur því hægt er að taka upp kúluna ef illa gengur en það er ekki hægt í höggleik – þetta er allt jafnskemmtilegt… ef maður er með góðu og skemmtilegu fólki.
Hver er uppáhaldsgolfvöllur/vellir á Íslandi? Fyrir utan Kirkjubólsvöll er það Lundsvöllur í Fnjóskadal – ég er mikið skotinn í honum.
Hver er uppáhaldsgolfvöllur/vellir hvar sem er í heiminum? Vilamoura I í Portúgal.
Hver er sérstæðasti golfvöllur sem þú hefir spilað á og af hverju? Pinecliff í Portúgal er sá sérstæðasti, vegna þess að maður slær yfir gilið á síðustu brautinni. Það var flott, ég fékk í magann þegar ég sló af teig því ég var svo hræddur við að fara ofan í gilið.
Hvað ertu með í forgjöf? 13,9 (Hún fylgist að forgjöfin, aldurinn og þyngdin – allt á uppleið, aldurinn svolítið afstæður spilaði með einum 70 ára í meistaramótinu og honum fannst hann ekkert vera svo gamall.)
Hvert er lægsta skorið þitt í golfi og hvar/á hvaða velli náðir þú því? 75 á gamla Kirkjubólsvellinum.
Hvert er helsta afrekið þitt til dagsins í dag í golfinu? Jesús Kristur, það má Guð almáttugur vita – Að koma upp þessum blessaða 18 holu velli. Ég hef ekki gert neinar rósir í golfinu – en samt er nú alltaf eitthvað – ég er búinn að fá birdie á allar holur og fékk eagle á báðar par-5 brautirnar og 8. sem er 11. núna (setti niður 120 metra högg).
Hvaða nesti ertu með í pokanum? Vatn eða Poweraide stundum sting ég niður flatkökum með hangikjöti.
Hefur þú tekið þátt í öðrum íþróttum? Í gamladaga, sem gutti var ég í handbolta og fótbolta, með Víking (smáíbúðarhverfinu).
Hver er ppáhaldsmatur, uppáhaldsdrykkur, uppáhaldstónlist, uppáhaldskvikmynd og uppáhaldsbókin þín ? Steiktur fiskur er minn uppáhaldsmatur, uppáhaldsdrykkurinn? Mér finst Cognac voða gott; uppáhaldstónlist? Ég er alæta og alveg sama á hvað ég hlusta; uppáhaldkvikmynd: Einhver af Bond-myndunum, ég er voða hrifinn af þeim og uppáhaldsbókin? Ég les voðalega lítið – síðasta bókin sem ég las og skemmti mér mikið yfir var bókin Golfaragrín.
Hver er uppáhaldskylfingurinn þinn, nefndu 1 kven- og 1 karlkylfing? Kvk.: Ragnhildur Sigurðardóttir og Kk.: Phil Mickelson.
Hvað er í pokanum hjá þér og hver er uppáhaldskylfan þín? K15 PING dræver, G15 3-tré, 5 tréð mitt, PING g15 járnasett u-wedge -4 60° járn eitthvað sem ég sem ég fékk á útsölu. Uppáhaldskylfan mín er 5-tréð. Það er 20 ára gömul kylfa Pro Simon Jumbo 747. Ég er rosalega hrifinn af henni . Ef allt annað klikkar tek ég hana upp. Ég átti sett dræver og 3-tré en lét þær í skiptum fyrir eitthvað drasl og sé mikið eftir því. – Þetta er mjög góðar kylfur.
Ertu hjátrúarfullur? Nei, tja nema ég legg kerruna/settið alltaf eins frá mér þegar ég er að slá.
Meginmarkmið í lífinu? Æ, ég veit það ekki – Ætli það sé ekki að verða ekki leiðinlegt gamalmenni.
Hvað finnst þér best við golfið? Útiveran og félagsskapurinn – þó félagsskapurinn sé stundum misjafn.
Að síðustu:
Spurning frá síðasta kylfingi (Hlyni Geir Hjartarsyni, framkvæmdastjóra GOS), sem var í viðtali hjá Golf 1:
Hefur þú komið á Selfoss og spilað golf? Svar Guðmundar: Já,ég hef spilað Svarfhólsvöll og mér líkaði mjög vel við hann áður en þeir breyttu honum þ.e. áður en að 2.-3.braut var breytt. Ég varð fyrir miklum vonbrigðum með breytingarnar. Annars líkar mér mjög vel við hann. En ég hef ekki spilað hann í 1-2 ár.
Getur þú komið með spurningu fyrir næsta kylfing sem Golf 1 tekur viðtal við?
Spurning Guðmundar: Hefur þú spilað á Kirkjubólsvelli og ef þú hefur spilað hann hvernig líkar þér hann?
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024