Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 12. 2021 | 09:30

Stigamótaröð GSÍ 2021: Ragnhildur kvenstigameistari!!!

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, er stigameistari GSÍ í kvennaflokki árið 2021.

Hún hlaut samtals 4210 stig í 5 mótum, sem hún lék í . Þar af sigraði hún í Hvaleyrarbikarnum, varð þrívegis í 2. sæti og síðan í 9. sæti á Íslandsmótinu í holukeppni.

Þetta er í 3. skipti sem Ragnhildur hampar stigameistaratitlinum.

Ragnhildur. GR og Andri Már GHR, sigurvegarar Hvaleyrarbikarsins

Í 2. sæti á kvenstigalistanum  varð Berglind Björnsdóttir, GR. Hún spilaði í öllum 6 stigamótunum, sigraði í Leirumótinu, varð í 3. sæti á Íslandsmótinu í höggleik og hlaut 3800 stig

Í 3. sæti á Guðrún Brá Björgvinsdóttir, en hún lék aðeins í 3 mótum og sigraði í þeim öllum og var með 3733 stig.

Sjá má stigalistann 2021 hjá konunum í heild með því að SMELLA HÉR: 

Stigameistarar í kvennaflokki frá upphafi (1989) eru: 

1989 Karen Sævarsdóttir

1990 Ragnhildur Sigurðardóttir

1991 Ragnhildur Sigurðardóttir

1992 Karen Sævarsdóttir

1993 Ólöf M. Jónsdóttir

1994 Ólöf M. Jónsdóttir

1995 Ólöf M. Jónsdóttir

1996 Ólöf M. Jónsdóttir

1997 Ólöf M. Jónsdóttir

1998 Ólöf M. Jónsdóttir

1999 Ragnhildur Sigurðardóttir

2000 Herborg Arnarsdóttir

2001 Ragnhildur Sigurðardóttir

2002 Herborg Arnarsdóttir

2003 Ragnhildur Sigurðardóttir

2004 Ragnhildur Sigurðardóttir

2005 Ragnhildur Sigurðardóttir

2006 Ragnhildur Sigurðardóttir

2007 Nína Björk Geirsdóttir

2008 Ragnhildur Sigurðardóttir

2009 Signý Arnórsdóttir

2010 Valdís Þóra Jónsdóttir

2011 Signý Arnórsdóttir

2012 Signý Arnórsdóttir

2013 Signý Arnórsdóttir

2014 Karen Guðnadóttir

2015 Tinna Jóhannsdóttir

2016 Ragnhildur Kristinsdóttir

2017 Berglind Björnsdóttir

2018 Guðrún Brá Björgvinsdóttir

2019 Ragnhildur Kristinsdóttir

2020 Guðrún Brá Björgvinsdóttir

2021 Ragnhildur Kristinsdóttir