Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 12. 2021 | 10:00

Webb Simpson elskar Wyndham Championship svo mikið að hann skírði dóttur sína í höfuðið á mótinu!

Wyndham Championship er mót vikunnar á PGA Tour.

Einn er sá sem elskar mótið meir en aðrir, jafnvel svo mikið að hann skírði 3. barn sitt, Wyndham Rose í höfuðið á mótinu.  Það er Webb Simpson.

Dóttir Webb Simpson, Wyndham Rose lengst t.v. ásamt foreldrum og 3 systkinum

Það líka ríkar ástæður fyrir Simpson, að líka vel við Wyndham mótið; það fer fram í Greenboro N-Karólínu, en þar spilaði hann í fyrsta stóra AJGA móti sínu; þar vann hann fyrsta PGA Tour titil sinn árið 2011 og faðir hans, Sam, afhenti honum bikarinn.

Á Wyndham Championship á Webb 8 topp-10 árangra þar af 4 topp-3 í röð.

Webb, var líkt og Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir í Wake Forest, sem er aðeins steinsnar frá vellinum, þar sem Wyndham mótið fer fram.

Á blaðamannafundi fyrir mótið nú sagði Webb m.a.:

Mér finnst þetta eins og heimamót fyrir mig. Ég ólst upp 1 og 1/2 tíma fjarlægð frá vellinum.  Ég elska þennan golfvöll.“