Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 17. 2015 | 10:05

GO: Helga, Jóhanna Dröfn, Einar og Rögnvaldur sigruðu á Opnunarmóti Odds

Urriðavöllur opnaði með glæsilegu opnunarmóti sem fram fór 16. maí 2015. Um 170 kylfingar tóku þátt í mótinu og voru margir kylfingar að leika fínt golf. Í höggleik karla var það Rögnvaldur Magnússon sem lék best eða á 72 höggum (+1) og varð tveimur höggum betri en næstu kylfingar. Í kvennaflokki var það Jóhanna Dröfn Kristinsdóttir sem lék best eða á 88 höggum.

Golf 1 var á staðnum og má sjá myndaseríu Golf 1 með því að SMELLA HÉR: 

Úrslit í mótinu urðu eftirfarandi:
Kvennaflokkur:
1. sæti Helga Hermannsdóttir 37 punktar 19 á seinni
2. sæti Rósa Pálína Sigtryggsdóttir 37 punktar 16 á seinni
3. sæti Jóhann Dröfn Kristinsdóttir 36 punktar (tekur 1. verðlaun besta skor).*
4. sæti Hlíf Hansen 34 punktar 17 á seinni *(tekur verðlaun fyrir 3. sætið)
Besta skor kvenna: Jóhanna Dröfn Kristinsdóttir 88 högg

Lengsta teighögg 9. braut: Sonja María

Karlaflokkur:
1. sæti Einar Sigurðsson 39 punktar 21 á seinni
2. sæti Hafliði Kristjánsson 39 punktar 19 á seinni
3. sæti Friðrik Kristjánsson 39 punktar 18 á seinni
Besta skor karla: Rögnvaldur Magnússon 72 högg

Lengsta teighögg 14. braut: Rögnvaldur Magnússon

Nándarverðlaun: 

4. braut: Bragi Benediktsson 1,15
8. braut: Jón Valur Guðmundsson 39 cm
13. braut: Vilborg Helgadóttir 2,28
15. braut: Kristján S Kristjánsson 29 cm

Sjá má heildarúrslit í mótinu með því að SMELLA HÉR: 

Urriðavöllur kemur vel undan vetri og er spennandi golfsumar í vændum. Flatirnar eru mun betri en á sama tíma í fyrra. Með hækkandi hitastigi ætti völlurinn að komast í sitt allra besta ásigkomulag áður en um langt líður.
Helga Björnsdóttir ljósmyndari var á líka ferðinni á Urriðavelli í gær og tók margar frábærar myndir af kylfingum sem sjá má í heild með því að  SMELLA HÉR: