Ragnheiður Jónsdóttir | október. 4. 2011 | 16:00

10 verstu höggin sem slegin eru úti á velli

Það eru nokkur högg í golfi, sem geta gert hvern heilvita kylfing vitlausan. Afleiðingarnar eru ýmsar: heitstrengingar um að hætta í golfi að eilífu… sem er áætlun sem varir hjá flestum ekki nema í nokkrar sekúndur, fúkyrðaflaumur eða í versta falli að kylfum er hent  út í vatn eða þær eru beygðar, sveigðar, brotnar eða þeim lamið í jörðina. Allt eru þetta meðal miður skemmtilegra áhrifa sem þessi slæmu högg hafa á kylfinginn. Það versta við það er að hann slær þess högg sjálfur! Þetta eru högg á borð við að slá boltann í óslánlega legu, að sjanka, að „whiff-a“ (þ.e. slá vindhögg), að toppa, að slæsa, að húkka, að lenda í sandglompu, að slá í jörðina, að skalla, að missa stutt pútt o.fl. o.fl. Af hverju gera kylfingar sér þetta?

Til að sjá samantekt Golf Digest á þessum miður skemmtilegu höggum smellið HÉR: