Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2020 | 20:00

LPGA: Fyrsti sigur McDonald bar upp á 28 ára afmælisdaginn!!!

LPGA Drive On Championship Reynolds Lake Oconee fór fram dagana 22.-25. október og lauk því í dag.

Sigurvegari mótsins var hin bandríska Ally McDonald og er þetta fyrsti sigur hennar á LPGA.

Sigurskor McDonald var 16 undir pari, 272 högg (66 – 68 – 69 – 69).

Svo skemmtilega vildi til að fyrsti sigur McDonald bar upp á afmælisdag hennar – en hún er fædd 25. október 1992 og varð því 28 ára sigurdaginn- Fyrsti LPGA sigurinn líklega stærsta gjöfin!

Í 2. sæti varð landa McDonald, Danielle Kang, sem var aðeins 1 höggi á eftir.

Sjá má lokastöðuna á LPGA Drive On með því að SMELLA HÉR: