Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 2. 2023 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ian Woosnam ——– 2. mars 2023

Það er velski kylfingurinn Ian Harold Woosnam, sem er afmæliskylfingur dagsins. Hann er fæddur 2. mars 1958 og á því 65 ára afmæli í dag. Woosnam gerðist atvinnukylfingur 1976 og hefir sigrað í 52 mótum á atvinnumannsferli sínum; þ.á.m. 29 sinnum á Evróputúrnum og 2 sinnum á PGA Tour. Woosnam er í 6. sæti yfir þá sem sigrað hafa oftast á Evróputúrnum. Þekktastur er Woosie, eins og hann er oft nefndur,  fyrir sigur sinn á Masters risamótinu 1991.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Pamela Barnett, 2. mars 1944 (79 ára – lék á LPGA); Jorge Soto 2. mars 1945 (78 ára); Þórdís Unndórsdóttir (74 ára); Ólafur Örn Ólafsson, GKB, 2. mars 1956 (67 ára);   Ian Harold Woosnam, 2. mars 1958 (65 ára); David George Barnwell, 2. mars 1961 (62 ára); Phil Jonas (kanadískur kylfingur á Senior Tour – evrópsku öldungamótaröðinni), 2. mars 1962 (61 árs); Þorsteinn J. Vilhjálmsson 2. mars 1964 (59 ára); Topon Stekkjarberg (49 ára); Hlynur Þór Stefánsson (41 árs); Joanna Klatten, 2. mars 1985 (38 ára); Nikulás Einarsson, 2. mars  .… og ….

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is