Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 13. 2012 | 16:15

Tiger ekki ánægður eftir lokahringinn á Pebble Beach

Tiger Woods hefir átt sínar sögulegu stundir á Pebble Beach. Í gær, sunnudag, átti hann enn eina stjörnustund, en hins vegar stund sem hann vill gjarnan gleyma.

Tiger var 4 höggum á eftir forystunni fyrir lokahringinn á AT&T Pebble Beach National Pro-Am og lauk leik T-15 eftir hring upp á 3 yfir pari, 75 höggum og var 9 höggum á eftir sigurvegaranum , Phil Mickelson.

Þetta var 30. skiptið sem þeir tveir spila saman og Mickelson var með 11 högga betra skor en Tiger á lokahringnum, sem er mesti munur á þeim.

Það voru púttin sem voru veika hlið Woods. Hann tapaði 5 púttum, sem voru innan við 5 fet (2 metra) þ.á.m. nokkur sem bara þurfti rétt að stjaka við til að setja niður.  Allt í allt var Tiger á 31 pútti.

„Ég gat bara ekki komið mér í þægilega stöðu þaðan sem ég gat séð púttlínuna,“ sagði Woods. „Ég missti tonn af púttum.“

„Það er frústrerandi.  Ég var að líta í -2 til -3 undir pari á fyrstu sex holunum […]…“

Mickelson náði síðan Tiger og fór fram úr honum með 3 fuglum og erni á fyrstu 6 holunum sínum… og leit aldrei aftur.

Tiger átti aldrei tækifæri. Hann missti fugl af 2 m færi á par-5 2. brautinni, en boltinn snerti aldrei holuna og síðan aftur stuttu par-3 sjöundu, þegar púttið hans af 2 fetum fór framhjá. Síðan eftir að hann fékk 2 skolla í röð fór hann að missa af  púttum aftur, nú af tæp 2 metra færi á 8. braut og var rétt um 3 metranna á 9. braut eftir slæmt högg úr brautarglompu.

Það var vonarglæta á par-3 12. brautinni þar sem Tiger fékk fugl úr glompu, en Mickelson lobbaði af 10 metra færi fram hjá holunni. En Mickelson náði að koma tilbaka með löngu par-pútti.

„Ég hélt ég ætti von þarna um miðbik hringsins en það fór á annan veg,“ sagði Tiger.

Heimild: PGA Tour