Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 20. 2012 | 20:15

Þórdís og Þórður Emil efst á 35+ í Eyjum eftir 2. dag

Tveimur hringjum af þremur á Icelandair 35 ára+ mótinu sem leikið er í Vestmannaeyjum er nú lokið. Leikið er í fjórum flokkum kvenna og þremur flokkum karla.

Það er Íslandsmeistarinn Þórdís Geirsdóttir GK, sem leiðir í meistaraflokki kvenna, í öðru sæti er Ragnhildur Sigurðardóttir GR og í því þriðja er Ólöf María Jónsdóttir GK.

Þórdís Geirsdóttir, GK. Mynd: Golf 1

Í meistaraflokki karla er Þórður Emil Ólafsson GL efstur, í öðru sæti er núverandi Íslandsmeistari 35+, Tryggvi Valtýr Traustason GSE, jafnir í þriðja til fjórða sæti eru svo þeir Aðalsteinn Ingvarsson GV og Nökkvi Gunnarsson NK.

Hér er staðan eftir 2. mótsdag á 35+:

Meistaraflokkur kvenna:
1. sæti  Þórdís Geirsdóttir GK 145
2. sæti  Ragnhildur Sigurðardóttir GR 147
3. sæti  Ólöf María Jónsdóttir GK 150

2. flokkur kvenna;
1. sæti  Arnfríður I Grétarsdóttir GG 179
2. sæti  Jónína Pálsdóttir GKG 179
3. sæti  Karín Herta Hafsteinsdóttir GV 185

3. flokkur kvenna
1. sæti  Margrét Sigmundsdóttir GK 173
2. sæti  Ragnheiður Stephensen GKG 183
3. sæti  Elín Dröfn Valsdóttir GL 184

4. flokkur kvenna
1. sæti  Ólöf Baldursdóttir GK 196
2. sæti  Guðrún Einarsdóttir GK 206
3. sæti  Sandra Björg Axelsdóttir GKG 209

Meistaraflokkur karla
1. sæti  Þórður Emil Ólafsson GL 140
2. sæti  Tryggvi Valtýr Traustason GSE 141
3. sæti  Aðalsteinn Ingvarsson GV 142
4. sæti Nökkvi Gunnarsson NK 142

2. flokkur karla
1. sæti  Ingi Sigurðsson GV 7 152
2 .sæti Kristján Ragnar Hansson GK 156
3. sæti  Björn Steinar Stefánsson GKG 158
4. sæti  Þorsteinn Reynir Þórsson GKG 158

3. flokkur karla
1. sæti  Sigursveinn Þórðarson GV 177
2. sæti  Haukur Hermannsson GKG 178
3. sæti  Óðinn Kristjánsson GV 179

Heimild: golf.is