Ólafur Björn Loftsson on one of his favorite golfcourses in Iceland – the Vestmanna Islands golfcourse. Photo: gsimyndir.net
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 23. 2014 | 06:45

Erfiður 2. dagur hjá Ólafi Birni á úrtökumótinu í Flórída

Ólafur Björn Loftsson, NK,  lék 2. hring sinn á úrtökumótinu fyrir Latino América NEC Series í gær.

Ólafur Björn lék á 8 yfir pari, 80 höggum á Deere Run golfvelli  Sun N´ Lake Golf Club í Sebring, Flórída; hann fékk 1 fugl (á 18. braut); 7 skolla og 1 skramba.  Skrambinn kom á par-5 14 holuna, líkt og á deginum áður og virðist Ólafur Björn því eiga í vandræðum með þessa árans holu.  Hann sýndi þó karakter að fá fugl á síðustu holu eftir allar hremmingarnar á hringnum þar á undan og vonandi er lokaholan forboði um það sem er vændum er!

Samtals er Ólafur Björn búinn að spila á 12 yfir pari, 156 höggum (76 80) og ljóst að mótið er ekki alveg að fara eins og hann ætlaði sér.

Ólafur Björn er í 110. sæti af 127 þátttakendum úrtökumótsins eftir 2. dag. Tveir hringir eru eftir.

Á facebook síðu sína skrifaði Ólafur Björn:

„Annar erfiður dagur að baki hér á úrtökumótinu í Flórída. Lék á 80 (+8) höggum við afar erfiðar aðstæður. Í stað þess að telja upp allt sem úrskeiðis fór í dag ætla ég að gleyma þessum hring og einblína á þann næsta. Ég mun alls ekki leggja árar í bát heldur halda áfram að berjast á fullu og endurheimta sjálfstraustið.“ 

Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag úrtökumótsins í Sebring SMELLIÐ HÉR: