Skrúður 3. brautin á Garðavelli, Akranesi, öðrum uppáhaldsgolfvalla Guðmundar.
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 9. 2011 | 15:00

GL: Þórður Emil Ólafsson kjörinn formaður – 14,7 milljóna rekstrarhagnaður 2011

Aðalfundur GL var haldinn í 7. desember 2011. Á heimasíðu GL segir eftirfarandi um aðalfundinn:

„Um 40 félagsmenn mættu á fundinn.
Formaður GL fór yfir liðið ár og las skýrslu stjórnar, fráfarandi gjaldkeri fór yfir reikninga GL.
Rekstur og efnahagur klúbbsins var jákvæður á síðasta ári og er rekstrarhagnaður um
14,7 milljónir króna. Efnahagur klúbbsins lítur vel út um þessar mundir.  Eftir endurreikning og
afborganir þá stendur lán félagsins í 23,1 milljón eftir leiðréttingu höfuðstóls upp á 27,5 milljónir
og á sama tíma stendur handbært fé klúbbsins í 18,5 milljónum.
Skýrslu stjórnar og reikninga er að finna hér eða undir gl/skjöl/Aðalfundur GL á golf.is.

Félagsfundur samþykkti hækkun á árgjaldi GL um 4,6 % og verður fullt árgjald 2012 kr. 68.000.-
Kosning formanns, meðstjórnenda og varamanns í stjórn fór fram skv. 6. gr.
Stjórn GL fyrir starfsárið 2011 til 2012 er þannig skipuð:
Formaður Þórður Emil Ólafsson
Meðstjórnandi: Eiríkur Jónsson
Meðstjórnandi: Hörður Kári Jóhannesson
Meðstjórnandi: Tryggvi Bjarnason
Meðstjórnandi: Hannes Marinó Ellertsson
Varamaður: Ella María Gunnarsdóttir
Guðmundur Árnason hjá Dynax kynnti Nóra félaga- og innheimtu kerfi fyrir félagsmönnum.
Halldór Hallgrímsson kynnti  hugmyndir um hugsanlega útfærslu á nýjum golfskála GL
Veittar voru eftirtaldar viðurkenningar:
Guðmundar og Óðinsbikarinn: Guðjón Viðar Guðjónsson – fyrir óeigingjarnt starf fyrir GL
Háttvísiverðlaun: 2011 GSÍ: Sindri Snær Alfreðsson
Forgj.framför 2011:  Heimir Eir Lárusson
Bestu mætinguna í mót: Guðjón Svavar Böðvarsson 24 mót
Flesta skráða hringi Jóhannes Karl Engilbertsson 81 hring
Eins og áður segir er hægt að nálgast skýrslu stjórnar, allra nefnda og reikningahér eða undir gl/skjöl/Aðalfundur GL á golf.is.“

Heimild: Heimasíða GL