Ragnheiður Jónsdóttir | október. 6. 2011 | 20:00

13 kvenstjörnur golfsins nr. 8: Hollis Stacy

Hollis Stacy er bandarískur (atvinnu)kylfingur. Hún fæddist 16. mars 1954 í Savannah, Georgíu og komst á LPGA túrinn 1974, þar sem hún vann 18 (LPGA) mót og 4 risamót (þau eru öll talin upp í lok greinar).

Hún vakti strax athygli sem áhugamaður en sigraði United States Girls Junior Golf Championship þrívegis og er eini kylfingurinn, sem tekist hefir það þ.e. að sigra mótið 3 ár í röð (1969-1971). Árið 1970 sigraði hún á North and South Women´s Amateur Golf Championship í Pinehurst og spilaði í liði Bandaríkjanna í Curtis Cup, 1972.

Hollis Stacy var í Rollins College í Winter Park, Flórída.

Hollis Stacy sigraði á 4 risamótum á ferli sínum: US Women´s Open árin 1977, 1978 og 1984 og Peter Jackson Classic, árið 1983 (sem síðar fékk nafnið du Maurier Classic).

Hollis sigraði auk þess, eins og áður segir í 18 mótum á LPGA mótaröðinni, en síðasti sigurinn vannst 1991, þ.e. á Crestar-Farm Fresh Classic. Hollis spilaði á LPGA túrnum út árið 2000, en eftir það (2001) fékk hún rétt til að spila Women´s Senior Golf Tour (nú Legends Tour), þá 45 ára, en á þeirri mótaröð sigraði hún Shopko Great Lakes Classic strax fyrsta árið (2001), sem hún tók þátt.

Eftirfarandi eru sigrar Hollis Stacy sem áhugamanns:

1969 US Girls Junior

1970 US Girls Junior, North and South Women´s Amateur

1971 US Girls Junior

Sigrar Hollis Stacy, sem atvinnukylfings (fjöldi sigra í sviga fyrir aftan árið, sem sigurinn vannst):

1977 (3)  Lady Tara Classic, US Women´s Open, (vinningsskorið var samtals+4 yfir pari, alls 292 högg (70-73-75-74), Hollis átti 2 högg á þá sem varð í 2. sæti – Nancy Lopez; Rail Muscular Dystrophy Classic

1978 (2) Birmingham Classic, US Women´s Open  (vinningsskorið var samtals+5 yfir pari, alls 289 högg (70-75-72-72), Hollis átti 1 högg á þær sem urðu í 2. sæti, löndur sínar þ.e. bandarísku kylfingana JoAnne Carner og Sally Little)

1979 (1) Mayflower Classic

1980 (1) CPC Women´s International

1981 (2) West Virginia Bank Classic, Inamori Classic

1982 (3) Whirlpool Championship of Deer Creek, S&H Golf Classic, West Virginia LPGA Classic

1983 (3) S&H Golf Classic, CPC International, Peter Jackson Classic (vinningsskorið var samtals -12 undir pari, alls 277 högg (71-75-67-66), Hollis átti 2 högg á þær sem urðu í 2. sæti, löndur sínar þ.e. bandarísku kylfingana JoAnne Carner og Alice Miller)

1984 (1) US Women´s Open (vinningsskorið var samtals+2 yfir pari, alls 290 högg (74-72-75-69), Hollis átti 1 högg á þá sem varð í 2. sæti, Rosie Jones)

1985 (1) Mazda Classic of Deer Creek

1991 (1) Crestar-Farm Fresh Classic

 

Loks mætti geta annarra sigra Hollis Stacy:

1977 Pepsi-Cola Mixed Team Championship (með Jerry Pate)

1984 Nicirei Cup Team Matc