Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 15. 2011 | 16:15

Hugleiðingar golffréttamanna um hina nýbökuðu móður: Lorenu Ochoa nr. 6

Dýr vanans

eftir John Strege

Lorena Ochoa er ein af hæverskustu stjörnunum í sögu golfleiksins, hún er eins góð og hún er hæfileikarík. Hún er svo undantekningalaust kurteis að hver blaðamannafundur byrjaði óumbreytanlega á orðum hennar, „halló þið.“ (Ens.: „Hello everybody!“ Í einu mótinu var golffréttamaður USA Today ákveðinn að telja hana á að breyta kveðju hennar. Þannig að hann bauðst til þess að gefa fé til góðgerðarstofnunnar hennar ef hún breytti kveðjuorðum sínum úr „halló þið“ í „hvað er að gerast?“ (ens. What´s up?). Og Ochoa, sem hefir húmor samþykkti, þannig að hún hóf fundinn á „hvað er að gerast?“  Kveðjublaðamannafundur er líklega of sorgleg stund fyrir gamanyrði, en John fannst að það myndi vera fullkomið ef hún segði „bless þið.“ (… en dýr vanans hún hóf fundinn á „halló þið!“)