Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2011 | 09:00

Geoff Ogilvy leiðir á JB Were Australian Masters eftir 3. dag – spilaði á 63!

Það er heimamaðurinn Geoff Ogilvy, sem stal forystunni á JB Were Australian Masters úr höndum Ian Poulter í nótt, eftir að hafa komið inn á frábæru skori 63 höggum! Með þessu glæsiskori jafnar hann vallarmetið á Victoria golfvellinum í Melbourne, þar sem mótið fer fram.  Ogilvy fékk glæsilegan örn á 1. holunni, sem er par-4, 9 fugla og 3 skolla á þessum frábæra hring. Samtals er Ogilvy búinn að spila á 200 höggum sléttum (71 66 63), samtals -13 undir pari og bætir sig með hverjum hring.

„Mér líður greinilega mjög vel hér á þessum golfvelli. Ég hef líklega spilað hérna meira en á nokkrum öðrum golfvelli í heiminum,“ sagði Ogilvy við fréttamenn eftir hringinn góða. „Það er alltaf gaman að koma aftur til Melbourne… sérstaklega til að spila hér.“

Ian Poulter er í fallinn í 2. sætið eftir að hafa leitt mótið á fyrri helmingi þess. Hann er nú 2 höggum á eftir Ogilvy, samtals á – 11 undir pari, þ.e. 202 höggum (65 68 69). Þriðja sætinu deila landsmennirnir Nathan Green og Ashley Hall, 4 höggum á eftir Ogilvy. Fimmta sætinu deilir Ástralinn Greg Chalmers ásamt 4 öðrum á samtals -7 undir pari, þ.e. allir 6 höggum á eftir Ogilvy. John Senden er síðan einn fjögurra ástralskra kylfinga sem deila 10. sætinu á samtals -6 undir pari.

Það er ekki fyrr en komið er í 13. sætið að við finnum fyrir nr. 1  í heiminum – Luke Donald, en hann deilir því sæti með 5 Áströlum og allir hafa þeir spilað á samtals -5 undir pari. Luke Donald og hinir 5 eru heilum 8 höggum á eftir Ogilvy; Luke á samtals 208 höggum (69 70 69), sem er gott skor en engin flugeldasýning eins og hjá Ogilvy. Það er Geoff Ogilvy er kylfingur dagsins í Ástralíu!

Til þess að sjá stöðuna á JB Were Australian Open smellið HÉR: