F.v.: Svava Skúladóttir, Matthildur Helgadóttir, Guðrún Örp Þórgnýsdóttir og Hildur Gylfadóttir á skógarvelli í Englandi. Mynd: Í einkaeigu
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 17. 2015 | 11:00

GK: Keiliskonur í Englandi

Það er ekki óalgengt að Íslendingar fari í hópum til annarra landa til að spila golf.

Oftar en ekki eru þetta karlvinahópar, sem fara saman í árlega ferð til Spánar, Flórída eða Skotlands, eða staða sem þekktir eru fyrir ríka golfmenningu.

Það er ekki eins algengt að konur taki sig saman og ferðist erlendis til þess að spila golf.

Þar sem karlarnir sameina oft golf og fótbolta geta konurnar t.a.m. sameinað golf og verslunar- og/eða menningarferð.  Möguleikarnir óteljandi!

Það er búið að vera fjör í ferð Keiliskvenna til Englands, en þessar hressu konur á meðfylgjandi mynd léku  Shendish Manor Hotel & Golf Course í gær, í Apsley í Hertfordskíri.

Ef íslenskir hópar eru á ferð á erlendum golfvöllum endilega sendið Golf1 fréttir af því á golf1@golf1.is