Cheyenne Woods
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 27. 2015 | 12:00

Cheyenne viss um að frændi hennar verði á toppnum á ný

Cheyenne Woods er viss um að frændi hennar Tiger Woods muni aftur komast á toppinn.

Það er erfitt að horfa á Tiger ströggla, en ég held ekki að það sé nokkuð vafi á því að hann muni aftur verða þar sem hann var og fara að sigra aftur,“ sagði Cheyenne við Golf Channel.

Tiger leggur harðar að sér en nokkur sem ég hef nokkru sinni hitt. Þannig að mér finnst ekki nokkur vafi á því að hann muni snúa aftur (í vinningsgírinn).“

Mark O’Meara, fyrrum félagi Tiger er ekki svo viss um það.

Það er erfitt að skilja það sem hefir komið fyrir hann ,“ sagði O´Meara á fimmtudaginn. „Af því sem ég hef séð í síðustu viku … hann segir að hann sé nálægt fyrra formi. Hann lítur ekki þannig út í mínum augum. Ég held að það sé of mikið að gerast í hausnum á honum.“

Woods sjálfur hefir viðurkennt að mikið sé um að vera hjá honum.  En ekkert virðist gerast (leiklega séð).