Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 21. 2016 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Lúðvík Geirsson – 21. apríl 2016

Afmæliskylfingur dagsins er Lúðvík Geirsson, fv. bæjarstjóri í Hafnarfirði. Hann er fæddur 21. apríl 1959 og því 57 ára í dag. Lúðvík er í Golfklúbbnum Keili og hefir spilað golf frá því hann var smástrákur. Sem strákur átti hann (og á eflaust enn) fínt golfsett, sem heill hópur af frábærum kylfingum naut góðs af þegar þeir voru að stíga sín fyrstu spor í golfinu, m.a Þórdís Geirs, margfaldur Íslandsmeistari, systir hans, sem laumaðist í settið hjá eldri bróður sínum, þegar hún var að byrja.

Lúðvík er kvæntur Hönnu Björk Lárusdóttur og á 3 syni: Lárus, f. 1984, Brynjar Hans f. 1989 og Guðlaug Bjarka f. 1996, en síðastnefndi sonur Lúðvíks, Guðlaugur Bjarki, var m.a. sigursæll á Áskorendamótaröð Íslandsbanka.

Komast má á Facebooksíðu afmæliskylfingsins hér til þess að óska honum til hamingju:

Lúðvík Geirsson
Lúðvík Geirsson (57 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Karen Dale Lundqvist Eggeling 21. apríl 1954 (62 ára); Michael Jonzon, 21. apríl 1972 (44 ára); Virada Nirapathpongporn, 21. apríl 1982 (34 ára); Beatriz Recari, 21. apríl 1987 (29 ára); Hafliði Már Brynjarsson, GS, 21. apríl 1993 (23 árs) … og ….

Bogi Ísak Bogason, GR (21 árs)

Gassi Olafsson (39 ára)

Holmar Freyr Christiansson (33 ára)

Róbert Þór Guðmundsson (36 ára)
lögreglumaður.

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is