Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 2. 2016 | 05:55

LPGA: Jenny Shin sigraði í Texas

Það var Jenny Shin frá Suður-Kóreu, sem stóð uppi sem sigurvegari á VOA Texas Shootout Presented by JTBC og var þetta fyrsti sigur hennar á LPGA.

Shin lék á samtals 14 undir pari, 270 höggum (68 70 65 67).

Gerina Piller sem búin var að vera í forystu allt mótið og leiddi m.a. með 2 höggum fyrir lokahringinn varð að láta sér 2. sætið nægja, sem hún deildi auk þess með Mi Jong Hur og Amy Yang frá Suður-Kóreu, en þær léku allar á 12 undir pari.

Til þess að sjá hápunkta 4.hrings VOA Texas Shootout Presented by JTBC SMELLIÐ HÉR:

Tilþess að sjá lokastöðuna á VOA Texas Shootout Presented by JTBC SMELLIÐ HÉR: