Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2016 | 18:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2017: Brianna Do (1/54)

Þann 30. nóvember – 4. desember fór fram 3. stigs mót LPGA, lokaúrtökumót um hverjar 20 myndu hljóta fullan keppnisrétt á LPGA keppnistímabilið 2016-2017 og hvaða keppendur hlytu takmarkaðan keppnisrétt þ.e. þær sem voru í sætum 21-45 og þær sem jafnar voru í 45. sætinu eða T-45.

155 þátttakendur voru að þessu sinni.

10 stúlkur voru jafnar í 44. sæti og hljóta allar takmarkaðan spilarétt. Þetta voru þær: Brianna Do, Augusta James, Emily Collins, Caroline Inglis, Allyssa Ferrell, Haeji Kang, Benyapa Niphatsophon, Alejandra Llaneza, Hannah Burke, Celine Boutier og Krista Puisite.

Allar léku þær á 3 undir pari, 363 höggum.

Í dag verður byrjað á að kynna Briönnu Do. Brianna er fædd 3. janúar 1990 og því 26.ára. Do útskrifaðist frá UCLA fyrir 4 árum þar sem hún keppti í 4 ár með háskólaliði sínu. Hún er dóttir Max og Phuong Lam og á 1 bróður Max Jr., og systurina, Dee Dee. Hún komst á LPGA í fyrstu tilraun sinni 2012.

Meðal hápunkta á ferli Briönnu til þessa er eftirfarandi:

Varð tvívegis Long Beach Press Telegram leikamaður ársins og þrisvar first team selection.
Brianna varð tvisvar AJGA All-American selection.
Briana var í liði Bandaríkjanna í Junior Solheim Cup 2007.
Hún vann sér inn Second Team All-Pac 10 honors 2010 meðan hún spilaði enn með golfliði UCLA.
Brianna sigraði Women’s Amateur Public Links, 2011.
Hér er mikið efni á ferðinni og nokkuð ljóst að við eigum eftir að heyra meira frá Briönnu í framtíðinni

Hér má að lokum sjá myndskeið með Briönnu Do (og fyrrum liðsfélaga hennar í UCLA, Tiffany Lua) SMELLIÐ HÉR: