Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 20. 2017 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2017: Gabriella Cowley – 50/66

Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.

Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.

Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar.

Nú erum við að kynna þær sem höfnuðu í 16. sæti og hlutu fullan spilarétt á LET; en það voru 2 stúlkur sem báðar léku á 6 undir pari, 354 höggum, hvor.

Þetta eru þær Gabriella Cowley frá Englandi (70 71 69 72 72) og Emma Nilsson (72 72 71 71 68).

Í dag verður Gabriella Cowley kynnt.

Gabriella Cowley fæddist í London, Englandi, 10. mars 1996 og er því 20 ára.

Hún er fremur hávaxin af kvenkylfingi að vera, eða 1,8 m á hæð.

Gabriella býr í Essex í Englandi.

Uppáhaldskylfingurinn hennar er Seve Ballesteros og uppáhaldsgolfvöllurinn Valderrama.

Gabriella gerðist atvinnumaður í golfi fyrir u.þ.b. 2 árum eða 30. október 2004.

Helstu áhugamál Gabríellu eru að fara í verslunaferðir í ræktina og verja tíma með fjölskyldunni.