07/08/2018. Ladies European Tour 2018. European Championships, PGA Centenary Course. Gleneagles, Scotland August 8 -12 2018. Olafia Kristinsdottir of Iceland during a practice round. Credit: Tristan Jones
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 20. 2018 | 13:30

LPGA: Ólafía Þórunn hefur keppni í Kanada n.k. fimmtudag

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir hefur leik á fimmtudaginn á CP-meistaramótinu á LPGA mótaröðinni sem fram fer í Kanada. Mótið hefst 23. ágúst og stendur fram til 26. ágúst. Leikið er á Wascana vellinum í Regina.

Ólafía komst ekki í gegnum niðurskurðinn á síðasta móti sem fram fór í Indianapolis, en þar lék hún á -1 samtals (71-72).

Þeir sem léku á -4 eða betur komust í gegnum niðurskurðinn.

Eins og staðan er núna þá er Ólafía í sæti nr. 139 á peningalista LPGA mótaraðarinnar.

Ólafía þarf að vera á meðal hundrað efstu til að halda keppn­is­rétt­in­um á næsta tíma­bili, en verði hún í sæt­um 101-125 í lok tíma­bils­ins, fær hún tak­markaðan keppn­is­rétt á næsta tímabili.

Þá þarf hún samt sem áður að fara í gegn­um úr­töku­mót fyr­ir mótaröðina í des­em­ber, verði hún í sæt­um 101-125.

Hvað gerir Ólafía á fimmtudaginn? Fylgist með!!!

Texti (allt nema síðasta setning): GSÍ  Mynd: Tristan Jones