Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 30. 2018 | 07:00

LET Access: Guðrún Brá m/á Turfman Allerup Open

Íslandsmeistarinn í höggleik kvenna 2018, Guðrún Brá Björgvinsdóttir atvinnukylfingur úr GK, tekur þátt í móti vikunnar á LET Access, Turfman Allerum Open.

Mótið er þriggja daga frá 30. ágúst – 1. september 2018 og fer fram á velli Allerum golfklúbbsins í Helsingborg, Svíþjóð.

Guðrún Brá fer út kl. 14:10, sem er kl. 12:10 að íslenskum tíma.

Guðrún Brá er í ráshóp með heimakonunum Moa Folke og Isabelle Johannsson frá Svíþjóð.

Guðrún Brá er fyrir mótið í 62. sæti stigalista LET Access.

Fylgjast má með stöðunni a Turfman Allerum Open og gengi Guðrúnar Brá með því að SMELLA HÉR: 

Í aðalmyndaglugga: Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Mynd: Frosti.