Ragnheiður Jónsdóttir | október. 26. 2018 | 14:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2019: Kramer Hickok (3/50)

Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour keppnistímabilið 2018-2019 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Web.com Tour eftir 2017-2018 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 4 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Web.com Finals.

Fyrst verður byrjað að kynna þá 25 sem urðu efstir á peningalista Web.com Tour eftir reglulega tímabilið og verður nú kynntur sá sem varð í 23. sæti peningalistans, Kramer Hickok. Eftir að efstu 25 á peningalista Web.com Tour hafa verið kynntir verða þeir 25 kynntir sem urðu efstir á Web.com Finals.

Kramer Hickok fæddist 14. apríl 1992 í Houston, Texas og er því 26 ára.

Hann er 1,8 m á hæð og 81 kg.

Kramer spilaði í bandaríska háskólgolfinu með liði University of Texas.  Hann útskrifaðist 2015 með gráðu í landafræði.

Á Web.com túrnum 2017-2018 varð Kramer 4 sinnum meðal efstu 10 og varð því í 23. sæti á peningalista mótaraðarinnar sem tryggði honum kortið á 2018-2019 keppnistímabili PGA Tour.

Sem stendur er Hickok í 135. sæti heimslistans.