Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 20. 2018 | 14:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2019: John Chin (16/50)

Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour keppnistímabilið 2018-2019 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Web.com Tour eftir 2017-2018 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 4 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Web.com Finals.

Fyrst verður byrjað að kynna þá 25 sem urðu efstir á peningalista Web.com Tour eftir reglulega tímabilið og verður nú kynntur sá sem varð í 1o. sæti peningalistans, John Chin. Eftir að efstu 25 á peningalista Web.com Tour hafa verið kynntir verða þeir 25 kynntir sem urðu efstir á Web.com Finals.

John Chin fæddist 24. apríl 1987 í Fairfax, Virginíu og er því 31 árs.

Chin er 1,78 m á hæð.

Chin býr í Temecula, Californíu og lék í bandaríska háskólagolfinu með liði UC Irvine.

Á 2017-2018 keppnistímabilinu varð Chin 3 sinnum meðal efstu 10 í mótum Web.com Tour og það tryggði honum 10. sæti peningalistans, en 2 af þessum topp-10 áröngrum hans voru 2. sætið í móti; þannig að nú er hann kominn með kortið sitt á mótaröð þeirra bestu og spilar á PGA Tour keppnistímabilið 2018-2019.

Chin er sá fyrsti sem útskrifast frá UC Irvine til þess að spila á PGA Tour.