Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 17. 2019 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Lee Lopez (20/58)

Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið. Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.

Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og síðan einnig þær 10, sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur.

Hér hafa 10 efstu á peningalista Symetra Tour verið kynntar sem og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, en það eru þær Karen Chung, frá Bandaríkjunum; P.K. Kongkraphan frá Thaílandi; Louise Strahle frá Svíþjóð og Robyn Choi frá Ástralíu.

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.

Það voru 6 stúlkur, sem deildu 39. sætinu en það eru: Lee Lopez, Sandra Changkija, Lauren Coughlin og Stephanie Kono frá Bandaríkjunum; Pajaree Anannarukarn frá Thaílandi og Guilia Molinaro frá Ítalíu. Þessar 6 léku allar á samtals 9 yfir pari á lokaúrtökumótinu, hver. Allar nema Lee Lopez hafa verið kynntar og verður hún nú kynnt í dag.

Lee Lopez fæddist 13. maí 1990, í Whittier, Kaliforníu dóttir hjónanna Robert og Ana Lopez og er því 28 ára í dag.

Lopez byrjaði að spila golf þegar hún var 4 ára.

Lopez lék með golfliði Long Beach State University í Kaliforníu, í bandaríska háskólagolfinu og má m.a. sjá afrek hennar með því að SMELLA HÉR:

Nýliðaár hennar á LPGA var 2016 og hefir hún haldið kortinu síðan.

Meðal áhugamála Lopez eru yoga, að hlaupa, að baka, að lesa og útivist.

Lopez hefir sagst myndi vera sjálfboðaliði í að ferðast um heiminn og hjálpa vanþróuðu löndunum, ef hún hefði tækifæri til