Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 4. 2019 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Kristy McPherson (28/58)

Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið. Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.

Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og síðan einnig þær 10, sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur.

Hér hafa 10 efstu á peningalista Symetra Tour verið kynntar sem og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, en það eru þær Karen Chung, frá Bandaríkjunum; P.K. Kongkraphan frá Thaílandi; Louise Strahle frá Svíþjóð og Robyn Choi frá Ástralíu.

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.

Það voru 6 stúlkur, sem deildu 39. sætinu og hafa þær einnig verið kynntar en það eru: Lee Lopez, Sandra Changkija, Lauren Coughlin og Stephanie Kono frá Bandaríkjunum; Pajaree Anannarukarn frá Thaílandi og Guilia Molinaro frá Ítalíu. Þessar 6 léku allar á samtals 9 yfir pari á lokaúrtökumótinu, hver. Síðan hafa þær sem deildu 36. sætinu verið kynntar en það eru: Suzuka Yamaguchi frá Japan; Louise Ridderström frá Svíþjóð og Sophia Popov frá Þýskalandi, en þær léku á samtals 8 yfir pari. Eins hafa þær 3 verið kynntar sem deildu 33. sætinu og léku á samtals 7 yfir pari en það eru Dori Carter og Lori Beth Adams frá Bandaríkjunum og Laetitia Beck frá Ísrael og sú sem var ein í 32. sætinu og lék á samtals 6 yfir pari, en það er María Fassi, frá Mexíkó.

Í dag verður hafist handa við að kynna þær stúlkur sem deildu 27. sætinu og léku állar á samtals 5 yfir pari, en það eru: Kristy McPherson, Cheyenne Knight, Sara Burnham og Lilia Vu frá Bandaríkjunum og Muni He frá Kína.

Byrjað verður á því að kynna Kristy McPherson.

Kristy McPherson fæddist 28. maí 1981 í Conway, S-Karólínu og hefir verið á LPGA í 12 ár þ.e. nýliðaár hennar var 2007 og er hún því aðeins að endurnýja spilaréttindi sín.

Þegar Kristy var 11 ára greindist hún með gigtarsjúkdóm sem nefnist Stills disease og var sagt að hún gæti ekki tekið þátt í íþróttum þar sem þyrfti að hlaupa eða stökkva.

Hún valdi því golfið og spilaði m.a. með strákaliðinu í menntaskóla þar sem ekkert stelpulið var í skólanum.

Kristy er 1,68 m á hæð.

Hún lék í bandaríska háskólagolfinu með liði University of South Carolina á golfskólastyrk og sigraði m.a. 7 sinnum í einstaklingskeppnum á þeim tíma.  Kristy útskrifaðist 2003 úr háskóla með gráðu í íþrótta- og skemmtiiðnaðarfræðum (ens.: Sports and Entertainment Management).

Hún reyndi fyrst fyrir sér á minni mótaröðunum m.a. Futures Tour 2003-2006 og tók m.a. á þeim tíma þátt í golfraunveruleikaþáttunum Big Break IV og var sú 5. til að detta út.  Á Futures tók hún þátt í 60 mótum og komst í gegnum niðurskurð á þeim öllum og sigraði í 2 mótum.  Árið 2006 varð hún í 4. sæti á peningalista Futures og ávann sér þar með kortið sitt á LPGA, sem hún hefir haldið sér á síðan.

McPherson hefir aldrei sigrað í LPGA móti en besti árangur hennar á risamóti er T-2 árangur á ANA Inspiration árið 2009.

Í dag býr Kristy í Tampa í Flórída.