Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 3. 2019 | 07:45

PGA: Fowler efstur f. lokahring WM Phoenix Open

Rickie Fowler er enn efstur fyrir lokahring WM Phoenix Open og verður gaman að sjá hvort hann heldur haus og nær loks að landa sigri í þessu móti, sem hann hefir glímt við í svo mörg ár. Kannski honum takist loks að sigra fyrir litla vin sinn Griffin, en söguna af honum má rifja upp með því að SMELLA HÉR:

Fowler er samtals búinn að spila á 20 undir pari, 193 höggum (64 65 64).

Í 2. sæti, 4 höggum á eftir Fowler er Matt Kuchar á samtals 16 undir pari, og í 3. sæti er Justin Thomas á samtals 15 undir pari.

Til þess að sjá stöðuna að öðru leyti á WM Phoenix Open SMELLIÐ HÉR: 

Til þess að sjá hápunkta 3. dags á WM Phoenix Open SMELLIÐ HÉR: