Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 13. 2019 | 18:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2019: Louis de Jager (14/27)

Golf 1 hefir á undanförnum árum kynnt „nýju strákana“ á Evróputúrnum og verður því fram haldið hér.

Lokaúrtökumótið í ár fór fram á Lumine golfstaðnum í Tarragona, nálægt Barcelona á Spáni, dagana 10.-15. nóvember og voru að venju spilaðir 6 hringir.

Efstu 25 og þeir sem jafnir voru í 25. sætinu hlutu kortið sitt á Evróputúrnum. Í ár voru það 27 sem hlutu kortið sitt á Evróputúrnum.

Líkt og á undanförnum árum verður hafist á að kynna þá sem urðu í síðustu sætunum fyrst og endað á þeim sem sigruðu í Q-school þ.e. urðu efstir í lokaúrtökumótinu.

Í ár deildu 8 strákar 20. sætinu og komust því 27 „nýir strákar“ á Evróputúrinn í ár gegnum lokaúrtökumótið. Einn þeirra sem ekki komst að þessu sinni, þrátt fyrir frábæra spilamennsku var Birgir Leifur „okkar“ Hafþórsson, GKG.

Þeir 8 sem deildu 20. sætinu, þ.e. urðu T-20 hafa nú allir verið kynntir en það eru: Kristian Krogh Johannessen, Filippo Bergamaschi, David Borda, Max Schmitt, Hugo León, Ben Evans, Kristoffer Reitan og Gavin Moynihan. Eins hefir sá verið kynntur sem einn hafnaði í 19. sæti en það var skoski kylfingurinn Marc Warren.

Sex kylfingar deildu 13. sætinu en það eru enski kylfingurinn Daníel Gavins, áströlsku kylfingarnir Deyen Lawson og Nick Cullen, Guido Migliozzi frá Ítalíu, Per Längfors frá Svíþjóð og Louis  de Jager frá S-Afríku. Deyen Lawson, Daníel Gavins, Guido Migliozzi og Per Längfors hafa þegar verið kynntir og í dag er það Louis DeJage frá S-Afríku.

Louis  de Jager fæddist 30. mars 1987 í Duiwelskloof, Norður-Transvaal í S-Afríku og er því 31 árs.

Hann er meðalmaður á hæð 1,81 m og 80 kg.

De Jager átti farsælan áhugamannsferil þar sem hann sigraði m.a. á  South African Amateur Championship árið 2007, bæði í höggleiks og holukeppnishlutanum. Árið 2007 sigraði de Jager líka í  Gauteng North Etonic Open og the Boland Open, en mótin eru hluti af Sólskinstúrnum, s-afríska.

De Jager gerðist atvinnumaður í golfi árið 2008.

Hann sigraði í fyrsta móti sínu á Sólskinstúrnum árið 2009 þ.e. á the Suncoast Classic.

Alls á de Jager 5 sigra á Sólskinstúrnum, en hinir 4 eru:

2 5 Sep 2014 Vodacom Origins of Golf (Wild Coast) −2 (63-68-77=208) Playoff South Africa Jaco Ahlers, South Africa Haydn Porteous
3 6 Nov 2014 Nedbank Affinity Cup −12 (68-68-68=204) Playoff South Africa Vaughn Groenewald, South Africa Danie van Tonder
4 26 Oct 2018 Sun Sibaya Challenge −13 (68-64-65=197) 1 stroke South Africa CJ du Plessis, South Africa Breyten Meyer
5 3 Feb 2019 Eye of Africa PGA Championship −12 (68-70-67-71=276) Playoff South Africa Trevor Fisher Jnr
See also