Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 14. 2019 | 12:00

Golfútbúnaður: 7 góðar golfregnhlífar

Tripsavvy gerði könnun á því hverjar væru að þeirra mati 7 bestu golfregnhlífarnar.

Hér koma niðurstöðurnar:

Nr. 1 Procella regnhlífin 62 þummlunga

Procella golfregnhlífin kom best út í könnuninni. Hún er úr 100% nylon og veitir mjög góða vörn gegn bæði rigningu og sólargeislum. Kaupa má regnhlífina með því að SMELLA HÉR: 

Nr. 2 Sú sem varð í 2. sæti er LifeTek Hillcrest Golfregnhlífin 62-þummlunga Extra Large. Hægt er að fá þessa á Amazon – Sjá með því að SMELLA HÉR:

 

Nr. 3 Easton Grey vindheld Golfregnhlíf. Þessi er tvöfalt ódýrari en hinar tvær en jafnstór þ.e. 62 þummlunga hlíf úr pongee efni. Hún er til sölu á 24 dollara á Amazon og kemur í öðrum litum og litasamsetningum en fyrri tvær – Sjá með því að SMELLA HÉR:

 

Nr. 4 Fjórða besta golfregnhlífin er eftirfarandi: Fit-In-Bag Golfregnhlífin Compact & Lightweight. Þessi er fislétt og vel samþjappanlega öfugt við þær sem á undan er minnst á. Hentar vel fyrir kylfinginn, sem er að ferðast. Fæst í bláu, rauðu og svörtum lit og fæst bæði á Amazon Sjá með því að SMELLA HÉR eða Ebay – Sjá með því að SMELLA HÉR: 

Nr. 5  G4 Free 68-þumlunga golfregnhlíf. Hér er á ferðinni besta stærsta golfregnhlífin. Undir hana passar ekki bara 1 kylfingur heldur allt hollið!!! Og miðað við hvað hún er stór kemur á óvart hvað hún er létt aðeins u.þ.b. 1/2 kg.  Þessi fæst á EBay – Sjá m.a. með því að SMELLA HÉR:

Nr. 6 Hér kemur ein besta golfhlífin þegar kemur að sólarvörn: UV-Blocker UV Protection Golf (regn) hlífin. Hún er viðurkennd af Melanoma International Foundation, sem góð vörn þegar kemur að húðkrabbameini. Með vörn UV 55. Þessi fæst m.a. á vefsíðu Wallmart – Sjá með því að SMELLA HÉR: 

Nr. 7 Marino Golfregnhlífin vindþolin 62-þumlunga. Fæst í ýmsum litum og á Amazon – Sjá með því að SMELLA HÉR: