Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 17. 2019 | 18:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2019: Ben Silverman (29/50)

Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour keppnistímabilið 2018-2019 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Web.com Tour eftir 2017-2018 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 4 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Web.com Finals.

Nú hafa verið kynntir þeir 25, sem urðu efstir á peningalista Web.com Tour eftir reglulega tímabilið og hlutu þannig kortin sín á mótaröð þeirra bestu, PGA Tour, síðast var kynntur sá sem varð í 1. sæti peningalistans, Sungjae Im frá Suður-Kóreu.

Nú er aðeins eftir að kynna þá 25, sem urðu efstir á Web.com Finals og hlutu þannig þáttökurétt á mótum PGA Tour. Fyrst var kynntur sá sem rétt slapp í hóp þeirra 25 efstu en það var Jim Knous, síðan Fabián Gómez frá Mexíkó og síðan bandaríski kylfingurinn Michael Hayes Thompson.

Sá sem varð í 22. sæti á Web.com Tour Finals og sá sem kynntur verður í dag er Ben Silverman.

Ben Silverman fæddist 15. nóvember 1987 í Thornhill, Ontario í Kanada og er 31 árs Kanadamaður.

Hann var aðeins 16 ára þegar hann ákvað að hann ætlaði að verða atvinnumaður í golfi.

Silvermann lék í bandaríska háskólagolfinu fyrst með liði með liði Johnson & Wales University í Miami og síðan árið 2008 flutti hann sig til Florida Atlantic University (skammst. FAU) þaðan sem hann útskrifaðist sem sálfræðingur.  Í dag býr Silverman í West Palm Beach í Flórída.

Silverman hóf atvinnumannsferil sinn í golfi þegar 2010 eftir útskriftina frá FAU. Hann spilaði á nokkrum af minni mótaröðunum þ.á.m. Minor League Golf Tour, NGA Tour og the Professional Golf tour, til þess að geta nokkurra. Árið 2014 og 2015 var hann kominn með fullan spilarétt á PGA Tour Canada og árið 2016 var Silverman kominn á Web.com Tour.

Hann ávann sér 22. sætið í Web.com Tour Finals með því að vera með $47,700 í vinningsfé, þ.e. í síðustu 4 mótum Web.com Tour mótaraðarinnar og hefir nú náð markmiði sínu að spila á PGA Tour með fullan spilarétt keppnistímabilið 2018-2019.

Komast má á facebook síðu Silverman, til þess að fræðast meira um hann, með því að SMELLA HÉR: