Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 19. 2019 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Jenny Haglund (37/58)

Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið. Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.

Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og síðan einnig þær 10, sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur.

Hér hafa 10 efstu á peningalista Symetra Tour verið kynntar sem og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, en það eru þær Karen Chung, frá Bandaríkjunum; P.K. Kongkraphan frá Thaílandi; Louise Strahle frá Svíþjóð og Robyn Choi frá Ástralíu.

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.

Það voru 6 stúlkur, sem deildu 39. sætinu og hafa þær einnig verið kynntar en það eru: Lee Lopez, Sandra Changkija, Lauren Coughlin og Stephanie Kono frá Bandaríkjunum; Pajaree Anannarukarn frá Thaílandi og Guilia Molinaro frá Ítalíu. Þessar 6 léku allar á samtals 9 yfir pari á lokaúrtökumótinu, hver. Síðan hafa þær sem deildu 36. sætinu verið kynntar en það eru: Suzuka Yamaguchi frá Japan; Louise Ridderström frá Svíþjóð og Sophia Popov frá Þýskalandi, en þær léku á samtals 8 yfir pari. Eins hafa þær 3 verið kynntar sem deildu 33. sætinu og léku á samtals 7 yfir pari en það eru Dori Carter og Lori Beth Adams frá Bandaríkjunum og Laetitia Beck frá Ísrael og sú sem var ein í 32. sætinu og lék á samtals 6 yfir pari, en það er María Fassi, frá Mexíkó.

Þær stúlkur sem deildu 27. sætinu á samtals 5 yfir pari voru Kristy McPherson, Cheyenne Knight, Sara Burnham og Lilia Vu frá Bandaríkjunum og Lily Muni He frá Kína. Síðan deildu 4 23. sæti á samtals 4 yfir pari hver, þ.e. þær Gemma Dryburgh, frá Skotlandi; Jing Yan og Xiyu Lin frá Kína og Lauren Kim frá Bandaríkjunum. Þær hafa allar verið kynntar.

Næstar verða kynntar þær 3 stúlkur sem deildu 20. sætinu, allar á samtals 3 yfir pari en það eru: Maddie McCrary og Alana Uriell frá Bandaríkjunum og Jenny Haglund frá Svíþjóð. Byrjað verður á því að kynna Jenny Haglund.

Jenny Haglund fæddist 26. júní 1993 í Karlstad í Svíþjóð og er því 25 ára.

Haglund lék með SMU í bandaríska háskólagolfinu og á þar lægsta meðalskor í skólanum, í heildina tekið þ.e. yfir þau 4 árs sem hún var þar,  þ.e. 73.55.

Haglund gerðist atvinnumaður í golfi 2016 eftir útskrift frá SMU.

Hún spilaði fyrst (2016) á LET Access, en vann sér sæti á Evróputúrnum í gegnum stigalista LET Access, árið 2017, þar sem hún var í 2. sæti, m.a. eftir sigur á Azores Ladies Open, þegar á nýliðaári sínu.

Hún var nýliði á Symetra Tour, keppnistímabilið 2018 þar sem hún sigraði einu sinni, á Symetra Classic 2018 og átti 4 topp 10 árangra og náði 14 sinnum niðurskurði í þeim 15 mótum sem hún tók þátt í.

Í febrúar 2018 vann Haglund sér inn glænýjan Hyundai Genesis G80 eftir að fara holu í höggi á 3. hring ISPS Handa Women’s Australian Open í Adelaide, Ástralíu

Haglund sigraði í Lalla Meryem Cup í apríl 2018 á Evrópumótaröð kvenna, (ens.: the Ladies European Tour (LET)).

Haglund hefir þegar tekið þátt í fyrsta risamóti sínu en það var í fyrra á KPMG Women’s PGA Championship en þar spilaði hún í boði styrktaraðila.