Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 20. 2019 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Alana Uriell (38/58)

Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið. Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.

Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og síðan einnig þær 10, sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur.

Hér hafa 10 efstu á peningalista Symetra Tour verið kynntar sem og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, en það eru þær Karen Chung, frá Bandaríkjunum; P.K. Kongkraphan frá Thaílandi; Louise Strahle frá Svíþjóð og Robyn Choi frá Ástralíu.

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.

Það voru 6 stúlkur, sem deildu 39. sætinu og hafa þær einnig verið kynntar en það eru: Lee Lopez, Sandra Changkija, Lauren Coughlin og Stephanie Kono frá Bandaríkjunum; Pajaree Anannarukarn frá Thaílandi og Guilia Molinaro frá Ítalíu. Þessar 6 léku allar á samtals 9 yfir pari á lokaúrtökumótinu, hver. Síðan hafa þær sem deildu 36. sætinu verið kynntar en það eru: Suzuka Yamaguchi frá Japan; Louise Ridderström frá Svíþjóð og Sophia Popov frá Þýskalandi, en þær léku á samtals 8 yfir pari. Eins hafa þær 3 verið kynntar sem deildu 33. sætinu og léku á samtals 7 yfir pari en það eru Dori Carter og Lori Beth Adams frá Bandaríkjunum og Laetitia Beck frá Ísrael og sú sem var ein í 32. sætinu og lék á samtals 6 yfir pari, en það er María Fassi, frá Mexíkó.

Þær stúlkur sem deildu 27. sætinu á samtals 5 yfir pari voru Kristy McPherson, Cheyenne Knight, Sara Burnham og Lilia Vu frá Bandaríkjunum og Lily Muni He frá Kína. Síðan deildu 4 23. sæti á samtals 4 yfir pari hver, þ.e. þær Gemma Dryburgh, frá Skotlandi; Jing Yan og Xiyu Lin frá Kína og Lauren Kim frá Bandaríkjunum. Þær hafa allar verið kynntar.

Næstar verða kynntar þær 3 stúlkur sem deildu 20. sætinu, allar á samtals 3 yfir pari en það eru: Maddie McCrary og Alana Uriell frá Bandaríkjunum. Jenny Haglund var kynnt í gær og í dag er það Alana Uriell.

Alana Uriell fæddist 22. ágúst 1996 og er því 22 ára.

Uriell lék í bandaríska háskólagolfinu með liði University of Arkansas, The Razorbacks og komst á LPGA í fyrstu tilraun sinni.

Uriell gerðist atvinnumaður 22. október 2018, tveimur dögum áður en LPGA Q-Series var haldið í fyrsta sinn.

Uriell sigraði einu sinni í einstaklingskeppni í bandaríska háskólagolfinu en það var árið 2016 á UTSA Maryb S. Kauth Invitational.

Hún varð 14 sinnum meðal efstu 10 á háskólaárum sínum í Arkansas og var með meðalhöggafjölda upp á 72.96.

Árið  2017 hlaut Uriell heiðursviðurkenningarnar Second Team All-SEC og árið 2018 First Team All-SEC performer fyrir University of Arkansas, sem og 2018 Women’s Golf Coaches Association Second Team All-American.

Uriell var í Palmer Cup liði Bandaríkjanna 2018.

Nú er hún komin á bestu kvenmótaröð heims þar sem hún keppir keppnistímabilið 2019.