Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 21. 2019 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Maddie McCrary (39/58)

Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið. Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.

Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og síðan einnig þær 10, sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur.

Hér hafa 10 efstu á peningalista Symetra Tour verið kynntar sem og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, en það eru þær Karen Chung, frá Bandaríkjunum; P.K. Kongkraphan frá Thaílandi; Louise Strahle frá Svíþjóð og Robyn Choi frá Ástralíu.

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.

Það voru 6 stúlkur, sem deildu 39. sætinu og hafa þær einnig verið kynntar en það eru: Lee Lopez, Sandra Changkija, Lauren Coughlin og Stephanie Kono frá Bandaríkjunum; Pajaree Anannarukarn frá Thaílandi og Guilia Molinaro frá Ítalíu. Þessar 6 léku allar á samtals 9 yfir pari á lokaúrtökumótinu, hver. Síðan hafa þær sem deildu 36. sætinu verið kynntar en það eru: Suzuka Yamaguchi frá Japan; Louise Ridderström frá Svíþjóð og Sophia Popov frá Þýskalandi, en þær léku á samtals 8 yfir pari. Eins hafa þær 3 verið kynntar sem deildu 33. sætinu og léku á samtals 7 yfir pari en það eru Dori Carter og Lori Beth Adams frá Bandaríkjunum og Laetitia Beck frá Ísrael og sú sem var ein í 32. sætinu og lék á samtals 6 yfir pari, en það er María Fassi, frá Mexíkó.

Þær stúlkur sem deildu 27. sætinu á samtals 5 yfir pari voru Kristy McPherson, Cheyenne Knight, Sara Burnham og Lilia Vu frá Bandaríkjunum og Lily Muni He frá Kína. Síðan deildu 4 23. sæti á samtals 4 yfir pari hver, þ.e. þær Gemma Dryburgh, frá Skotlandi; Jing Yan og Xiyu Lin frá Kína og Lauren Kim frá Bandaríkjunum. Þær hafa allar verið kynntar.

Þrjár stúlkur deildu 20. sætinu, allar á samtals 3 yfir pari en það voru: Maddie McCrary, og Alana Uriell frá Bandaríkjunum og Jenny Haglund frá Svíþjóð. Alana og Jenny hafa verið kynntar og í dag er það Maddie McCrary sem verður kynnt.

Maddie McCrary fæddist 15. febrúar 1996 og er því nýorðin 23 ára. Hún byrjaði að spila golf 5 ára.

McCrary lék golf með golfliði Oklahoma State og má sjá afrek hennar í háskólagolfinu með því að SMELLA HÉR: 

Meðan hún spilaði með OSU vann McCrary Windy City Individual Championship og var 8 sinnum meðal efstu 5 í mótum og hlaut þrívegis viðurkenninguna All-Big 12 honoree.

Hún komst á LPGA í fyrstu tilraun sinni í lokaúrtökumótinu og var farin að spila í mótum bæði Symetra Tour og LPGA 2018.

Hún náði að komast tvívegis í gegnum niðurskurð af þeim 10 mótum, sem hún tók þátt í á LPGA 2018 og var besti árangur hennar T-32 árangur í Volunteers of America LPGA Texas Classic. Hún náði að komast 5 sinnum í gegnum niðurskurð af þeim 10 mótum, sem hún tók þátt í á Symetra Tour, en besti árangur hennar var T-16 árangur í Florida’s Natural Charity Classic mótinu.

McCrary er sem stendur nr. 719 á Rolex-heimslistanum.

Meðal áhugamála McCrary utan golfsins er að matreiða og baka og vera aktíf.