Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 21. 2019 | 12:00

John Daly með fyndið líkamsræktar myndskeið

Golfarar sem komnir eru á efri ár geta borið vitni um að eftir því sem aldurinn færist yfir því mun meiri vinna fer í að halda sér í formi til þess að geta gefið það besta á golfvellinum.

Vijay Singh er dæmi þessa. Hann er orðinn 55 ára og birti meðfylgjandi myndskeið af sér í ræktinni SMELLIÐ HÉR:

Og jafnvel þó að myndskeið Vijay úr ræktinni hafi vakið nokkra athygli þá er vídeóið frá John Daly mun fyndnara.

Daly hefir aldrei verið mikill aðdáandi líkamsræktar en hefir nú samt fengið aðstoð þjálfarans og tónlistarmannsins Jocko Deal.

Daly verðlaunar veruna í ræktinni, reyndar leggur erfiðið á sig í von um, að því er virðist, að fá bjór, hammara eða franskar á eftir!!!

Hér má sjá líkamsræktarmyndskeið Daly SMELLIÐ HÉR: