DUBAI, UNITED ARAB EMIRATES – DECEMBER 18: Masahiro Kawamura of Japan plays his tee shot on the 16th hole during the first round of the Dubai Open at The Els Club Dubai on December 18, 2014 in Dubai, United Arab Emirates. (Photo by Francois Nel/Getty Images)
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 21. 2019 | 14:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2019: Masahiro Kawamura (16/27)

Golf 1 hefir á undanförnum árum kynnt „nýju strákana“ á Evróputúrnum og verður því fram haldið hér.

Lokaúrtökumótið í ár fór fram á Lumine golfstaðnum í Tarragona, nálægt Barcelona á Spáni, dagana 10.-15. nóvember 2018 og voru að venju spilaðir 6 hringir.

Efstu 25 og þeir sem jafnir voru í 25. sætinu hlutu kortið sitt á Evróputúrnum. Í ár voru það 27 sem hlutu kortið sitt á Evróputúrnum.

Líkt og á undanförnum árum verður hafist á að kynna þá sem urðu í síðustu sætunum fyrst og endað á þeim sem sigruðu í Q-school þ.e. urðu efstir í lokaúrtökumótinu.

Í ár deildu 8 strákar 20. sætinu og komust því 27 „nýir strákar“ á Evróputúrinn í ár gegnum lokaúrtökumótið. Einn þeirra sem ekki komst að þessu sinni, þrátt fyrir frábæra spilamennsku var Birgir Leifur „okkar“ Hafþórsson, GKG.

Þeir 8 sem deildu 20. sætinu, þ.e. urðu T-20 hafa nú allir verið kynntir en það eru: Kristian Krogh Johannessen, Filippo Bergamaschi, David Borda, Max Schmitt, Hugo León, Ben Evans, Kristoffer Reitan og Gavin Moynihan. Eins hefir sá verið kynntur sem einn hafnaði í 19. sæti en það var skoski kylfingurinn Marc Warren.

Sex kylfingar deildu 13. sætinu en það eru enski kylfingurinn Daníel Gavins, áströlsku kylfingarnir Deyen Lawson og Nick Cullen, Guido Migliozzi frá Ítalíu, Per Längfors frá Svíþjóð og Louis de Jager frá S-Afríku. Þeir hafa nú allir verið kynntir.

Næst verða kynntir þeir sem deildu 11. sætinu en það voru japanski kylfingurinn Masahiro Kawamura og enski kylfingurinn Scott Gregory, en báðir léku þeir hringina 6 á lokaúrtökumótinu á samtals 19 undir pari. Byrjað verður á að kynna Kawamura

Masahiro Kawamura (川村 昌弘) fæddist Mie umdæmi í Japan, 25. júní 1993 og er því 25 ára.

Hann er 1,72 metrar á hæð og 72 kíló.

Kawamura hefir fram að þessu spilað á japanska PGA.

Hann vann fyrsta atvinnumannstitil sinn árið 2013 á Asia-Pacific Panasonic Open, móti sem haldið var í samstarfi með the Asian Tour.

Kawamura hefir tekið þátt fyrir hönd Japans í liðakeppnum m.a. Eisenhower Tropy 2010 og Amata Friendship Cup 2018.

Besti árangur Kawamura á risamóti til þess er T-39 árangur á Opna breska í fyrra, 2018.