Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 22. 2019 | 20:00

LPGA: Lee og Yang efstar í Thaílandi í hálfleik

Það eru þær Minjee Lee frá Ástralíu og Amy Yang frá S-Kóreu, sem leiða í hálfleik á Honda LPGA Thaíland mótinu, sem er mót vikunnar á LPGA mótaröðinni.

Báðar hafa þær spilað á samtals 11 undir pari, hver.

Lizette Salas frá Bandaríkjunum og Jenny Shin frá S-Kóreu deila 3. sætinu, 1 höggi á eftir.

Í viðtali við Salas eftir hringinn þakkaði hún aukinni áherslu á veru í ræktinni góðan árangur, en hún hefir ekki sést í efstu sætum skortaflna um skeið.

Til þess að sjá stöðuna á Honda LPGA Thaíland mótinu SMELLIÐ HÉR: