Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 24. 2019 | 02:00

WGC Mexíkó: DJ efstur f. lokahringinn!!!

Það er Dustin Johnson (DJ) sem horfir í 20. PGA Tour sigur sinn, en hann er með afgerandi forystu á heimsmótinu í Mexíkó.

DJ er búinn að spila á samtals 16 undir pari, 197 höggum (64 67 66),

DJ á heil 4 högg á þann sem næstur kemur en það er Rory McIlroy, sem er í 2. sæti á samtals 12 undir pari, 201 höggi (63 70 68).

Þriðja sætinu deila þeir Patrick Reed, Patrick Cantley, Sergio Garcia og Cameron Smith, allir á samtals 9 undir pari.

Til þess að sjá stöðuna á heimsmótinu í Mexíkó SMELLIÐ HÉR: