Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 26. 2019 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Tiffany Chan (43/58)

Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið. Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.

Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og síðan einnig þær 10, sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur.

Hér hafa 10 efstu á peningalista Symetra Tour verið kynntar sem og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, en það eru þær Karen Chung, frá Bandaríkjunum; P.K. Kongkraphan frá Thaílandi; Louise Strahle frá Svíþjóð og Robyn Choi frá Ástralíu.

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.

Það voru 6 stúlkur, sem deildu 39. sætinu og hafa þær einnig verið kynntar en það eru: Lee Lopez, Sandra Changkija, Lauren Coughlin og Stephanie Kono frá Bandaríkjunum; Pajaree Anannarukarn frá Thaílandi og Guilia Molinaro frá Ítalíu. Þessar 6 léku allar á samtals 9 yfir pari á lokaúrtökumótinu, hver. Síðan hafa þær sem deildu 36. sætinu verið kynntar en það eru: Suzuka Yamaguchi frá Japan; Louise Ridderström frá Svíþjóð og Sophia Popov frá Þýskalandi, en þær léku á samtals 8 yfir pari. Eins hafa þær 3 verið kynntar sem deildu 33. sætinu og léku á samtals 7 yfir pari en það eru Dori Carter og Lori Beth Adams frá Bandaríkjunum og Laetitia Beck frá Ísrael og sú sem var ein í 32. sætinu og lék á samtals 6 yfir pari, en það er María Fassi, frá Mexíkó.

Þær stúlkur sem deildu 27. sætinu á samtals 5 yfir pari voru Kristy McPherson, Cheyenne Knight, Sara Burnham og Lilia Vu frá Bandaríkjunum og Lily Muni He frá Kína. Síðan deildu 4 23. sæti á samtals 4 yfir pari hver, þ.e. þær Gemma Dryburgh, frá Skotlandi; Jing Yan og Xiyu Lin frá Kína og Lauren Kim frá Bandaríkjunum. Þær hafa allar verið kynntar.

Þrjár stúlkur deildu 20. sætinu, allar á samtals 3 yfir pari en það voru: Maddie McCrary, og Alana Uriell frá Bandaríkjunum og Jenny Haglund frá Svíþjóð.

Í dag verður haldið áfram að kynna þær, sem deildu 15. sætinu, allar á samtals 2 yfir pari, en það voru: Alison Lee, Clariss Guce og Katie Burnett, frá Bandaríkjunum, hin hollenska Anne Van Dam og Tiffany Chan frá Hong Kong. Alison Lee, Clariss Guce og Katie Burnet hafa verið kynntar og í dag er það Tiffany Chan.

Tiffany Chan fæddist 12. september 1993 og er því 25 ára. Hún er fyrsti kylfingur frá Hong Kong á LPGA.

Chan lék í bandaríska háskólagolfinu með Daytona State College þar sem hún varð tvívegis NJCAA meistari. Þar á eftir skipti hún um skóla og spilaði með golfliði University of Southern California.

Chan spilaði í liði Hong Kong í Espirito Santo bikarnum (World Amateur Team Championship) þrisvar sinnum (2010, 2012, 2014) og í Asian Games tvisvar (2010, 2014).

Árið 2016 sigraði Chan á Hong Kong Ladies Open á Ladies Asian Golf Tour.

Chan tók síðan sama ár þátt í Ólympíuleikunum fyrir hönd Hong Kong.

Chan gerðist atvinnumaður í golfi 2017 og keppti fyrst á Symetra Tour.

Í lok árs 2017 varð hún í 2. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og hlaut kortið sitt og full spilaréttindi á LPGA 2018, sem hún er nú búin að endurnýja og spilar því áfram á LPGA 2019!!!