Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 26. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: James Russel Ahern og Leszek Wolynski – 26. febrúar 2019

Það eru þeir James Russel Ahern og Leszek Wolynski sem eru afmæliskylfingar dagsins.

Jim Ahern

Ahern er fæddur 26. febrúar 1949 í Duluth, Minnesota og fagnar því 70 ára merkisafmæli í dag.  Hann hefir m.a. sigrað tvívegis á PGA Tour Champions: þ.e. á AT&T Canada Senior Open Championship, 29. ágúst 1999 en sigurskor hans var −16 (67-68-69-68=272) og eins sigraði Ahern 2. júní 2003 á Music City Championship at Gaylord Opryland.

Hinn afmæliskylfingurinn er Leszek Wolynski. Wolynski er fæddur 26. febrúar 1969 og á því 50 ára stórafmæli. Komast má á facebooksíðu Wolynski til þess að óska honum til hamingju með stórafmælið hér að neðan:

Leszek Wolynski

Leszek Wolynski – Innilega til hamingju með stórafmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Katherine Hull, 26. febrúar 1982 (37 ára); Anna Scott 26. febrúar 1986 (33 ára); Alison Lee, 26. febrúar 1996 (23 ára); Sigurður Arnar Garðarsson, 26. febrúar 2002 (17 ára) …. og ….. Hrafn Gk (35 ára) …. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum innilega til hamingju með 16 ára afmælið og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag til hamingju með daginn!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is