Anne Van Dam
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 27. 2019 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2019 (44/58): Anne Van Dam

Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið. Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.

Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og síðan einnig þær 10, sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur.

Hér hafa 10 efstu á peningalista Symetra Tour verið kynntar sem og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, en það eru þær Karen Chung, frá Bandaríkjunum; P.K. Kongkraphan frá Thaílandi; Louise Strahle frá Svíþjóð og Robyn Choi frá Ástralíu.

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.

Það voru 6 stúlkur, sem deildu 39. sætinu og hafa þær einnig verið kynntar en það eru: Lee Lopez, Sandra Changkija, Lauren Coughlin og Stephanie Kono frá Bandaríkjunum; Pajaree Anannarukarn frá Thaílandi og Guilia Molinaro frá Ítalíu. Þessar 6 léku allar á samtals 9 yfir pari á lokaúrtökumótinu, hver. Síðan hafa þær sem deildu 36. sætinu verið kynntar en það eru: Suzuka Yamaguchi frá Japan; Louise Ridderström frá Svíþjóð og Sophia Popov frá Þýskalandi, en þær léku á samtals 8 yfir pari. Eins hafa þær 3 verið kynntar sem deildu 33. sætinu og léku á samtals 7 yfir pari en það eru Dori Carter og Lori Beth Adams frá Bandaríkjunum og Laetitia Beck frá Ísrael og sú sem var ein í 32. sætinu og lék á samtals 6 yfir pari, en það er María Fassi, frá Mexíkó.

Þær stúlkur sem deildu 27. sætinu á samtals 5 yfir pari voru Kristy McPherson, Cheyenne Knight, Sara Burnham og Lilia Vu frá Bandaríkjunum og Lily Muni He frá Kína. Síðan deildu 4 23. sæti á samtals 4 yfir pari hver, þ.e. þær Gemma Dryburgh, frá Skotlandi; Jing Yan og Xiyu Lin frá Kína og Lauren Kim frá Bandaríkjunum. Þær hafa allar verið kynntar.

Þrjár stúlkur deildu 20. sætinu, allar á samtals 3 yfir pari en það voru: Maddie McCrary, og Alana Uriell frá Bandaríkjunum og Jenny Haglund frá Svíþjóð.

Þær, sem deildu 15. sætinu, allar á samtals 2 yfir pari, voru: Alison Lee, Clariss Guce og Katie Burnett, frá Bandaríkjunum, hin hollenska Anne Van Dam og Tiffany Chan frá Hong Kong. Þær hafa allar verið kynntar nema Anne Van Dam, sem verður loks kynnt hér.

Anne Van Dam fæddist 2. október 1995 í Arnhem, Hollandi og er því 23 ára. Van Dam byrjaði að spila golf 4 ára.

Hún byrjaði  að safna stigum á heimslista áhugamanna árið 2010, þar sem hún náði hæst að verða í 28. sæti.

Van Dam spilaði í Junior Solheim Cup.

Heima í Hollandi er Van Dam í Edese Golf Club en á árunum 2011 – 2012 spilaði Van Dam í de Noordwijkse Golfclub og skipti síðan yfir í Eindhovensche Golf árið 2013.

Þetta ár, 2013, varð Van Dam hluti af hollenska kvennagolflandsliðinu í golfi.

Árið 2014 tók Van Dam þátt í Lalla Aicha Tour School í Marokkó og komst í fyrstu tilraun sinni inn á LET.

Anne van Dam gerðist í kjölfarið atvinnumaður í golfi 2015. Það ár vann hún 1 sinnu í 2. deild kvenna í Evrópu, þ.e. LET Access þ.e. á Opna finnska.

Árið eftir hlaut Van Dam í fyrsta sinn þátttökurétt á Opna breska kvenrisamótinu 25. júlí 2016. Eins vann hún í fyrsta móti sínu á Evrópumótaröð kvenna (LET) þ.e. Xiamen China International Open og var heildarskor hennar 17 undir pari.

Van Dam bætti síðan við tveimur sigrum á LET í fyrra, 2018 þ.e. á Spáni á Andalucía Costa del Sol Open de España Femenino og eins á
Estrella Damm Mediterranean Ladies Open í Sitges, þar sem hún lék á samtals 13 undir pari  (68, 67, 66 70) í La Quinta Golf Resort í Benahavís, Marbella.

Með 3 sigra á LET í beltinu er Van Dam nú komin á mótaröð þeirra bestu í kvennagolfinu, LPGA, þar sem hún spilar keppnistímabilið 2019.

Sjá má nýlegt viðtal við Van Dam á LET með því að SMELLA HÉR: