Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 1. 2019 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Youngin Chun (46/58)

Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið. Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.

Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og síðan einnig þær 10, sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur.

Hér hafa 10 efstu á peningalista Symetra Tour verið kynntar sem og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, en það eru þær Karen Chung, frá Bandaríkjunum; P.K. Kongkraphan frá Thaílandi; Louise Strahle frá Svíþjóð og Robyn Choi frá Ástralíu.

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.

Það voru 6 stúlkur, sem deildu 39. sætinu og hafa þær einnig verið kynntar en það eru: Lee Lopez, Sandra Changkija, Lauren Coughlin og Stephanie Kono frá Bandaríkjunum; Pajaree Anannarukarn frá Thaílandi og Guilia Molinaro frá Ítalíu. Þessar 6 léku allar á samtals 9 yfir pari á lokaúrtökumótinu, hver. Síðan hafa þær sem deildu 36. sætinu verið kynntar en það eru: Suzuka Yamaguchi frá Japan; Louise Ridderström frá Svíþjóð og Sophia Popov frá Þýskalandi, en þær léku á samtals 8 yfir pari. Eins hafa þær 3 verið kynntar sem deildu 33. sætinu og léku á samtals 7 yfir pari en það eru Dori Carter og Lori Beth Adams frá Bandaríkjunum og Laetitia Beck frá Ísrael og sú sem var ein í 32. sætinu og lék á samtals 6 yfir pari, en það er María Fassi, frá Mexíkó.

Þær stúlkur sem deildu 27. sætinu á samtals 5 yfir pari voru Kristy McPherson, Cheyenne Knight, Sara Burnham og Lilia Vu frá Bandaríkjunum og Lily Muni He frá Kína. Síðan deildu 4 23. sæti á samtals 4 yfir pari hver, þ.e. þær Gemma Dryburgh, frá Skotlandi; Jing Yan og Xiyu Lin frá Kína og Lauren Kim frá Bandaríkjunum. Þær hafa allar verið kynntar.

Þrjár stúlkur deildu 20. sætinu, allar á samtals 3 yfir pari en það voru: Maddie McCrary, og Alana Uriell frá Bandaríkjunum og Jenny Haglund frá Svíþjóð.

Þær, sem deildu 15. sætinu, allar á samtals 2 yfir pari, voru: Alison Lee, Clariss Guce og Katie Burnett, frá Bandaríkjunum, hin hollenska Anne Van Dam og Tiffany Chan frá Hong Kong.

Í dag verður byrjað að kynna hina af tveimur sem deildu 13. sætinu: Kristen Gillman frá Bandaríkjunum hefir verið kynnt og í dag er það Youngin Chun frá Flórída.

Youngin Chun

Youngin Chun fæddist 14. maí 2000 og er því 18 ára.   Youngin er mjög oft kölluð Chuny.  Hún byrjaði að spila golf 5 ára.

Meðal afreka Chuny sem áhugakylfingur mætti geta eftirfarandi:

Sigraði á The Polo Golf Junior Clinic champion 2017.
Sigraði 5 sinnum á ungmennamótum bandaríska golfsambandsins AJGA.
Sigraði á US Kids Golf World Championship (2010, 2012).
Var hluti af 2017 Ping Junior Solheim Cup liðinu.
Hún var 4 sinnum í Rolex Junior All American Team (2014, 2015, 2016, 2017).
Hún var þrívegis í Wyndham Cup liðinu ((2015, 2016, 2017)

Í fyrra aðeins 17 ára komst Chuny á Symetra Tour og náði þar að komast í gegnum niðurskurð í 14 af þeim 21 móti sem hún tók þátt í. Hún var yngst á Symetra í fyrra og er nú yngst á LPGA.

Í fyrra 2018 gerðist hún einnig atvinnumaður í golfi.

Meðal áhugamála Chuny er að teikna og taka ljósmyndir.

Nú eftir að hafa náð 15. sætinu í lokaúrtökumóti LPGA er Chuny komin með fullan spilarétt á mótaröð þeirra bestu, LPGA, keppnistímabilið 2019.