Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 3. 2019 | 09:00

LPGA: Sung Hyun Park sigraði á HSBC

Það var Sung Hyun Park frá S-Kóreu, sem stóð uppi sem sigurvegari á HSBC Women´s World Championship.

Mótið stóð frá 28. febrúar – 3. mars 2018 þ.e. lauk í dag.

Sigurskor Park var 15 undir pari, 273 högg (69 – 71 – 69 – 64) – Mestu skipti glæsilegur lokahringurinn upp á 64 glæsihögg!!!

Í 2. sæti varð Minjee Lee frá Ástralíu 2 höggum á eftir þ.e. á 13 undir pari, 275 höggum (68 – 71 – 67 – 69).

Til þess að sjá lokastöðuna á HSBC Women´s World Championship SMELLIÐ HÉR: