Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 3. 2019 | 23:00

PGA: Keith Mitchell sigraði á Honda Classic

Það var bandaríski kylfingurinn og nýliðinn Keith Mitchell, sem sigraði á The Honda Classic.

Sigurskor Mitchell var samtals 9 undir pari, 271 högg (68 66 70 67).

Mitchell er e.t.v. ekki sá þekktasti á PGA Tour og má sjá kynningu Golf 1 á honum með því að SMELLA HÉR:

Öðru sætinu deildu þeir Brooks Koepka og Rickie Fowler, 1 höggi á eftir þ.e. á samtals 8 undir pari, hvor.

Mótið fór fram á Champions velli, PGA National Resort & Spa, dagana 28. febrúar – 3. mars 2019.

Til þess að sjá lokastöðuna á The Honda Classic SMELLIÐ HÉR:

Til þess að sjá hápunkta lokahrings The Honda Classic SMELLIÐ HÉR: