Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 4. 2019 | 07:00

LET: Anne Van Dam sigraði á Canberra Classic

Það var hollenski kylfingurinn Anne Van Dam sem sigraði á ActewAGL Canberra Classic.

Sigurskor Van Dam var 17 undir pari, 196 högg (68 63 65).

Sjá má nýlega kynningu Golf 1 á Anne Van Dam, sem verið hefir að gera góða hluti nú að undanförnu, með því að SMELLA HÉR: 

Í 2. sæti heilum 3 höggum á eftir var Katja Pogacar frá Slóveníu.

Í 3. sæti varð síðan fyrrum nr. 1 á heimslista kvenna Jiyai Shin, enn öðru höggi á eftir þ.e. á samtals 13 undir pari.

Til þess að sjá lokastöðuna á ActewAGL Canberra Classic SMELLIÐ HÉR:

Í aðalmyndaglugga: Anne Van Dam. Mynd: Bethan Cutler